Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 78

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 78
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Kennslugögn ÞÓ NÚ SÉ ORÐIÐ NOKKUÐ LANGT SÍÐAN, AÐ undirritaður fékk til yfirlestrar stutt útbýti (handout) sem fjallaði um geislagreiningu, skal það nú tekið til umræðu en í því koma fyrir ýmis orð sem eru í daglegri notkun þar sem röntgenmyndir eru pantaðar, teknar og skoðaðar. Um heitin aðréttu, útbýti og dreifigögn var fjallað í 53. pistli (FL; 1994; 12:8) og verður sú umfjöllun ekki endurtekin nú. Hins vegar má ítreka að enska heitið „handout“ er með öllu óþarft í íslensku máli. í fyrrgreindu kennsluefni er reyndar hvorki minnst á handout eða útbýti, heldur ber heftið hinn látlausa undirtitil „Nokkur minnisatriði.“ Höfundar er getið á forsíðu og fram kemur hvaða kennsluár heftið muni notað. Hins vegar er þess ekki getið hverjum heftið er ætlað né hvar það verður notað, væntanlega í læknadeild. Slíkum formsatriðum ættu höfundar kennslugagna að sinna. Greiningaraöferðir Geislagrcining er það íslenska heiti sem notað er um fræðiheitið radiodiagnosis, en það nær yfir röntgen- greiningu (roentgen diagnosis), ómgreiningu (ultra- sound diagnosis) og segulgreiningu (magnetic resonance diagnosis). Allt eru þetta lipur og lýsandi heiti sem auðveldlega ættu að komast í almenna notkun. Sárlega vantar þó liprara heiti á þá aðferð myndgerðar sem nefnist tölvusneiömyndataka (com- puterized tomography). Of oft er talað um „katt- skann“ eða „sí-tí-skann“ á slangurmálinu. Fyrir þá, sem vilja takast á við verkefnið, má nefna að gríska nafnorðið tomos merkir sneið og sagnorðið grapho að skrifa eða rita. Um leið mætti hyggja að því að samræma þýðingar á heitum fleiri rannsókna, svo sem angiographia, bronchographia, cholangiographia, salpingographia og ventriculo- graphia. Ástæða er til þess að hvetja lækna til að senda Orðanefnd læknafélaganna eða undirrituðum hugmyndir sínar, bæði hvað varðar ný erlend fræðiorð, sem þörf er á að fái íslensk heiti, og eins hvað varðar nýjar þýðingar á eldri orðum. Venjurannsóknir í heftinu er meðal annars greint frá því að við vissar aðstæður sé venja (rútína) að taka tilteknar röntgen- myndir. Höfundur notar fyrirsögnina venjurann- sóknir, þegar hann telur upp nokkur dæmi um slíkar myndatökur, og fer vel á því. Heitið „rútína“ fer hins vegar afar illa í rituðu máli, þó oft sé því slett í dag- legri umræðu. Enska nafnorðið routine fær íslensku þýðingarnar venja, vani, vanagangur og vanaverk í almennum ensk-íslenskum orðabókum, en er ekki uppflettiorð í Iðorðasafni lækna eða í tiltækum er- lendum læknisfræðiorðabókum. Hin mikla orðabók Websters greinir frá því að routine sé komið úr frönsku þar sem nafnorðið route merki braut eða vegur og sagnorðið routiner merki að venja við eitt- hvað. Tilgreind dæmi um mismunandi notkun og merkingu gefa til kynna að blæbrigði merkingar séu allt frá því að á íslensku megi nota orðin vani eða venja yfir í það að betur hæfi siður eða skylda. Full- yrðingin „Pað er rútína að taka lungnamynd!“ merkir að það sé meira en vani, það sé siðbundin venja, nánast skyldubundin verkregla, að taka lungna- mynd við tilteknar aðstæður. Pví finnst undirrituðum vel hæfa heitið venjurannsókn. Gaman væri að heyra um aðrar skoðanir eða aðrar tillögur. Myndaheiti I fyrrgreindu hefti er minnst á heiti mynda sem byggja á staðlaðri geislastefnu. Þannig eru tilnefndar „frontal-myndir“, „hliðarmyndir (lateral)“ og „ská- myndir“. Frons er latneskt nafnorð sem táknar enni. Frontal er svo lýsingarorð í enskri tungu sem getur vísað til ennis, framhliðar líkamans eða sniðs í gegnum hann (planum frontale), samsíða enni eða framfleti. Slíkt snið nefnir íðorðasafnið nú breið- skurð eða breiðsnið. Beinar þýðingar á frontal eru: fram- eða ennis-, en þýðingar á latneska lýsingar- orðinu frontalis eru: fram-, breið-, breiddar- og ennis-. „Frontal-mynd“ er tekin þannig að framhlið líkamans snýr að filmu og stefna röntgengeislanna er í gegnum líkamann frá baki að framfleti. Heitin „hliðarmynd“ og „skámynd" lýsa vel því sem þau eiga að tákna, en sárlega skortir lipurt heiti á „frontal-mynd“. Ekkert af heitunum ennismynd, breiðmynd eða breiddarmynd virðast koma til greina, en frammynd gæti ef til vill gengið. Heitið framstefnumynd er lýsandi og getur gefið vísbend- ingu um geislastefnuna, en er sennilega of langt. Óskað er eftir fleiri tillögum. Lbl 1996; 82:178 78 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.