Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 86

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 86
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 sem undirritaður lagði til að skyldi heita andlífunar- efni (Lbl 1996; 82:481) til samræmis við þá hugmynd að nietabolite nefndist lífunarefni. Viðbrögð lækna hafa enn lítil orðið, en pró- fessor Þorkell Jóhannesson sendi þó kveðju og ljósrit af síðu í einu af kennsluritum sínum í lyfja- fræði. Þar kemur fram að hann notar heitið lyfja- umbrot um allar þœr efnabreytingar, er verða á lyfjasameindum í líkamanum. A sömu síðu kemur einnig fyrir hið þægilega heiti umbrotsleiðir, sem væntanlega er þýðing á metabolic pathways. Sam- kvæmt þessu má nota íslenska heitið umbrotsefni um þau efni sem breytast eða verða til við umbrot (efnabreytingar, efnaskipti) og er það án efa skiljan- legra (gagnsærra) en heitið lífunarefni. Rökrétt væri þá að antimetabolite nefndist andumbrots- efni, þó fremur stirðlegt sé. Lbl 1996; 82:723 Erythroderma, roðahúð VlGFÚS SlGURÐSSON, LÆKNIR, SKRIFAR FRÁ Hollandi og biður um aðstoð við að finna íslenskt heiti sem nota megi um hugtakið erythroderma, en það er ekki í Iðorðasafninu. Vigfús segir í bréfi sínu að erythroderma sé sjúkdómsástand þar sem nær allt yfirborð húðar- innar sé rautt og að oftast fylgi hreisturmyndun. Hann segir enn fremur að ýmsir húðsjúkdómar geti valdið erythroderma. I sama streng tekur læknisfræðiorðabók Stedmans: ósértœkt heiti á miklum og venjulega útbreiddum roða í húð sem stafar af útvíkkun blóðæða og kemur oft á undan eða í tengslum við flagning. Þar og í hinni miklu læknis- og líffræðiorðabók Wileys má finna sam- heitin erythrodermatitis, erythrodermia og gene- ralized exfoliative dcrmatitis, auk annarra sem talin eru úrelt. Vigfús getur þess, að ekki sé alls kostar rétt að nota það síðasttalda sem samheiti, þar sem flagningur eða hreisturmyndun eigi sér ekki alltaf stað. Samheitl Samkvæmt Orðabók Máls og menningar er samheiti: samnafn, sameiginlegt heiti, orð sömu merkingar. Samheiti eru þó sjaldnast alveg jafngild eða nákvæm- lega sömu merkingar og á það ekki síst við um fræði- leg samheiti. I sumum tilvikum hafa orðið til ný fræðiheiti vegna þess að ný þekking leiðir í ljós að þau eldri byggðust á úreltri hugmyndafræði, en í öðr- um tilvikum er einungis um að ræða mismunandi sjónarhorn. Heitið erythroderma gefur til dæmis einungis til kynna að húðin sé rauð, en heitið erythroderma- titis að húðin sé bæði rauð og bólgin. Heitið exfoli- ative dermatitis sýnir hins vegar að um flagning og húðbólgu er að ræða, en ekkert er gefið til kynna um litinn. Þó að oft sé almennt samkomulag um notkun einstakra samheita, getur notkunin einnig byggst á óskilgreindri hefð eða verið bundin við ákveðin sérsvið, stofnanir, svæði eða lönd. Stund- um kemur það fyrir að vinsældir ákveðinna heita eru einungis tímabundnar. Iðorðafræðin krefjast þess þó við formlega skráningu að meðal samheita sé eitt ráðandi og þá tilgreint sem aðalheiti. íð- orðasafn lækna vísar á milli samheita þannig að til aðalheitis er vísað með orðinu sjá, en til annarra samheita með skammstöfuninni sh. Við þýðingar og nýyrðasmíð er meginreglan sú að leggja aðal- heitið til grundvallar. Roöahúö, húöroði, alroði Fyrrtaldar orðabækur velja báðar erythroderma sem aðalheiti. Heitið er samsett úr tveimur orðum sem bæði eru komin úr grísku. Það fyrra er erythros sem merkir rauður, en það síðara er derma sem merkir húð. Bein þýðing á erythroderma er því einfaldlega rauð húð. I Iðorðasafninu er orðhlutinn erythro- einnig stundum þýddur sem roða-, þannig að roða- húð kemur einnig til greina. Erythrodermatitis verður þá roðahúðbólga en exfoliative dermatitis getur fengið heitiö llagningshúðbólga. Við nýja þýðingu Alþjóðlegu sjúkdómaskrár- innar (ICD-10) var farin sú leið að velja heitið húðroði til að tákna erythroderma. Þó að undir- ritaður hafi átt þátt í því verki á sínum tíma, þá finnst honum nú að roðahúð sé betra heiti á þessu almenna og útbreidda sjúkdómsástandi og að húð- roði eigi betur við sem heiti á sjúkdómseinkenni. Vigfús leggur sjálfur til heitið alroði, en því vill undirritaður hafna með svipaðri röksemd: að það eigi betur við sem kerfisheiti til að lýsa útbreiðslu roða í húð, og tákni þá að húðin sé öll rauð. Valaögerð Nýlega var spurt um íslensk heiti á elective surgery og elective admission. í íðorðasafninu má finna elective operation en þar fylgir „?“ í stað þýðingar. Hins vegar má þar finna elective mutism sem þýtt er með þrísamsetta heitinu valmálleysi. Enska orðið electivc merkir valinn, kosinn eða kjörinn. Opcration er aðgerð eða skurðaðgerð og til samræmis verður elective operation þá valaðgerð. Heitið kjöraðgerð ætti hins vegar að nota um æskilegustu eða bestu að- gerð, til samræmis við heitið kjörþyngd, sem er notað i 86 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.