Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Síða 95

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Síða 95
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Undirritaður lagði það á sig að leita rækilega í Iðorðasafni lækna og tókst að finna þar heiti á rúmlega 70 áhöldum og tækjum sem nefnd eru scope á ensku. Islensk heiti langflestra enda á -sjá (kviðarholssjá) eða -spegill (kokspegill), en einnig koma þar fyrir -tæki (skyggnitæki), -pípa (hlust- pípa), -mœlir (sjónásmælir) og -verpill (mynd- verpill). Við yfirlestur kemur í ljós að full þörf er orðin á samræmingu, sem dæmi má nefna að colonoscope er skráð sem ristilspegill, en sigmoidoscope sem bugaristilssjá, og esophagoscope sem vélindis- spegill, en gastroscope sem magasjá. Undirrituð- um sýnist að heitið -sjá sé í flestum tilvikum besti kosturinn, þannig að opthalmoscope verði augn- sjá, otoscope verði eyrnasjá og rhinoscope verði nefsjá. (Framhald í næsta pistli.) Lbl 1997; 83: 603 Spegill eða sjá I SÍÐASTA PISTLI HÓFST UMRÆÐA UM læknisfræðileg skoðunaráhöld og tæki sem á fræðimálinu nefnast scope. Við leit í íðorðasafni lækna kom í ljós að íslensku heitin enda flest á -sjá eða -spegill. Undirritaður lýsti því sem skoðun sinni að sjá væri í flestum tilvikum besti kosturinn sem íslenskt heiti á scope. Augljóst er þó að það leysir ekki öll vandamál og að ýmsar undantekningar verður að gera. Stethoscope getur til dæmis tæpast heitið brjóstsjá. Pá má nefna að heitið sjá, sem nú virðist duga vel um tiltekin áhöld í réttu samhengi, er mjög almennt heiti og getur orðið alveg ófullnægjandi þegar fram koma ný tæki eða nýj- ar aðferðir. Magasjá og holsjá eru lipur heiti, miklu þægilegri en magaspeglunartæki og innspeglunar- tæki, en það er ókostur að í þeim felast engar upplýs- ingar um tæknina eða aðferðina sem beitt er. Heitið Ijósþráðamagaholsjá (fiberoptic gastroendoscope) gefur meiri upplýsingar, en er svo langt og stirðlegt að það verður vafalítið aldrei notað í daglegu tali lækna, hvorki innbyrðis né við sjúklinga. Pá er enn eftir að finna heiti á niiniscopc. Því miður er heitið smásjá þegar frátekið til að nota um microscope, ljóssmásjána, en hefði annars verið alveg rökrétt. Heitið smásjá gefur reyndar engar upplýsingar um aðferðina eða tæknina sem beitt er og gæti þess vegna átt vel við um ýmis önnur smá tæki eða smáskoðunartæki. Forskeytið micro- er nú gjarnan notað um það sem örsmátt er og því gæti það líka verið alveg rökrétt að nefna smásjána örsjá. Pað heiti er hins vegar einnig frátekið og notað um aðra tegund af smásjá, rafeindasmásjána. Þrátt fyrir langa umhugsun og miklar vangaveltur kemur undirrituðum ekkert betra í hug en að mini- scope verði nefnt smáholsjá á íslensku. Síðan má nefna aðgerðina, miniscopia, smáskoðun eða smá- speglun. Speglun eða hvað? Notkun tækjanna við læknisfræðilega rannsókn er yfirleitt nefnd scopia á latneska fræðimálinu og -scopy á ensku. Langalgengasta íslenska heitið á slíkri að- gerð er speglun. Einnig koma fyrir heiti sem enda á -glenning (rhinoscopia anterior), -greining (spectro- photometry), -hlustun (cephaloscopy), -lýsing (dia- phanoscopy), -myndataka (photofluoroscopy), -rann- sókn (microscopy) -skoðun (urinoscopy), -skyggning (fluoroscopy) og -sýn (phantasmoscopia). Loks er viðliðurinn -scopy sérstakt uppflettiorð í íðorðasafn- inu. Það fær ekki íslenska þýðingu á þeim stað í safn- inu, heldur þessa útskýringu: Merkir athugun, tœki. Við Ásgeir Theódórs höfum oft rætt um heitið scopia og sjaldnast verið sammála. Eg hef haldið fram íslenska heitinu speglun vegna þess hversu lipurt það er og útbreitt hjá almenningi og í sjálfu sér vel skiljanlegt. Hann hefur mótmælt, fyrst og fremst á þeim grundvelli að ekki sé lengur um neina spegla að ræða í holskoðunartækjum. í síð- asta mánuði náðum við þó samkomulagi um ís- lensku heitin speglun og holspcglun í stað erlendu heitanna scopia og endoscopia. Þau verði notuð þar til önnur betri fáist. Öðrum mótmælendum til hugarhægðar má nefna að Orðsifjabókin telur að íslenska orðið spcgill sé tökuorð úr miðlágþýsku, þangað komið úr miðaldalatínu, en upphaflega frá latnesku sögninni specio, ég sé, ég skoða. Latneska heitið spcculuin er af sama uppruna. Það skoðunar- áhald nefnir Iðorðasafn lækna einfaldlega spegil, en læknisfræðiorðabók Stedmans gefur þessa skýringu: Áhald til þess að stækka op á gangi eða holi til þess að auðvelda innri skoðun á því. Loks má nefna sögnina að spegla sem þægilegt er að nota um það að skoða líkams- eða líffærahol með þessum tækjum, á sama hátt og sögnin að óma er nú oft notuð um það að skoða innri líffæri með ómtækjum. Philtrum Þorkell Jóhannesson, prófessor, sendi kveðju snemma á þessu ári og vildi koma á framfæri heitinu miðs- nesisgróf í stað heitisins efrivararrenna sem notað er í líffærafræðiheitunum um philtrum, lóðrétta dæld í Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87 95
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.