Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 98

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 98
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Teppukvef Michael Clausen, barnalæknir, skrifar frá Akureyri og gerir grein fyrir ástandi sem ung börn fá stundum þegar þau veikjast af veirum og kallast á ensku „bronchiolitis“ og á sœnsku „obstructiv bronchitis“ og einkennist af kvefeinkennum og teppu í lungnapípum. Michael er ekki sáttur við þau íslensku heiti sem tilgreind eru í Iðorðasafni lækna og leggur fram sína eigin tillögu: Mín tillaga er aö við köllum það teppukvef ástandið sem einkennist af hvœs- andi, lengdri útöndun hjá veikum börnum yngri en 2ja ára, sem eru án ofnæmiseinkenna. Kvef Erindi Michaels gefur tilefni til þess að taka heitið kvef til svolítillar skoðunar, en það hefur lengi beðið á verkefnalista undirritaðs. Islensk orðabók Máls og menningar lýsir kvefi þannig: algengur farandkvilli, venjulega samfara bólgu í slímhimnu koks og háls, stundum hósta. Lesandinn er litlu nær. Islenska al- fræðiorðabókin gerir mun betur: kvefsótt: algengur, smitnœmur veirusjúkdómur í slímhúð nefs og háis; lýsir sér með nefrennsli, hnerra, höfuðverk, hita- slæðingi, beinverkjum og oft háls- og barkabólgu. Best er þó lýsing læknisfræðiorðabókar Stedmans undir flettunni cold: Veirusýking í efri öndunarvegi sem einkennist af vökvafyllu í slímhúðinni, vatns- kenndu nefrennsli og almennum lasleika sem varir þrjá til fimm daga. íðorðasafn lækna tekur í sama streng um comnion cold og gefur þar íslensku heitin kvef kvefsótt og bráð kvefsótt án sérstakrar aðgrein- ingar. Svo má því skilja að um samheiti sé að ræða. Heitin kvef og kvefsótt koma fyrir í íslensk- danskri orðabók Sigfúsar Blöndal frá 1920-1924, en þar er gerður sá greinarmunur að kvefsótt er talin „farandkvilli“. íslensk læknisfræðiheiti Guð- mundar Hannessonar frá 1954 tilgreina kvef sem eina af íslensku þýðingunum á catarrhus, en bráð kvefsótt er tilgreind sem þýðing á catarrhus re- spiratorius acutus. Gríska sögnin katarrhcin merk- ir að renna eða flæða niður. Fyrrgreind orðabók Stedmans lýsir catarrh þannig: bólga í slímhúð með auknu flœði slíms eða vilsu. Ekki er sérstak- lega vísað í slímhúð öndunarvegar og nú er fengin skýringin á því að Iðorðasafn lækna geymir nokk- ur kvefheiti sem nota má um bólgur með slím- eða Cephalosporin Um miðjan desember barst beiðni um tillögu að íslenskri stafsetningu lyfjaheitisins cephalosporin. Til fróðleiks má nefna að bólguvilsurennsli úr öðrum líffærum, svo sem magakvef ristilkvef, augnkvef lungnakvef og jafn- vel legkvef. Gríska læknisfræðiheitið coryza vísar hins vegar sérstaklega í öndunarfærin og er þýtt á ensku sem acute rhinitis og á íslensku sem nefkvef. Það er talið samsett úr nafnorðinu korys, sem merkir hjálmur eða höfuð, og sagnorðinu zeein, sem merkir að sjóða, ólga eða freyða. Greinilegt er að snemma urðu læknisfræðiheiti lýsandi. Að lokum má minnast á nafnorðið kvefja. Ið- orðasafn lækna gefur heitin slímhúðarbólga og kvefja undir flettunni catarrh, en í íslensku orð- sifjabókinni má finna sögnina að kvefja í merking- unni að kœfa eða stífla. Kvefja Helsti gallinn við tillögu Michaels er sá að heitið teppukvef vísar ekki sérstaklega í þau líffæri sem teppt eru, berkjurnar. Teppukvef gæti allt eins vísað í stíflað nef eða stíflaða görn. Spurningin er nú hvort ekki megi taka þetta nýja nafnorð, kvefja, til að nota um kvefmeð stíflu og að bæta síðan við tilvísun í það líffæri sem stíflað er eða teppt. Berkjukvef er bólga í berkjuslímhúð með auknu slím- og vilsurennsli og berkjukvefja yrði þá berkjukvef með teppu eða stíflu. An þess að leggjast beinlínis gegn tillögu Michaels er þessu hér með varpað fram, honum og öðrum áhuga- mönnum til umhugsunar. Aðrar tillögur eða frekari umræða væri vel þegin. Veiruflétta Ovænt rak nýlega á fjörumar heitið virus complex. I latínu má finna orðin complexio sem merkir sam- tenging eða sameining og complexus sem merkir samofinn. Af orðabókum má ráða að nafnorðið complex geti merkt samstæða, kerfi, flóki, flœkja eða flétta. Ein af orðskýringunum getur þess að líf- færafræðileg samstæða sé mynduð úr þremur eða fleiri skyldum fyrirbærum. Líffæra- og vefjafræði- heitin frá 1995 gera ráð fyrir að complex fái íslenska heitið flóki. Hér má þó vera að veirusamstæða hæfi betur, jafnvel veiruflétta. Lbl 1998; 84:63 heitið er dregið af ættkvíslarheiti tiltekinna sveppa, Cephalosporium. Sveppimir framleiða lyfjaefni sem geta unnið á sýklum, skyld penisillíni en ónæm fyrir 98 Læknablaðið/ fylgirit 41 2001/87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.