Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 106

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 106
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Calvaria, skalli I SÍÐASTA PISTLI VAR FJALLAÐ UM HEITIÐ calvaria. sem fyrst og fremst vísar til efri hluta höfuðkúpunnar og er því ekki notað sem samheiti við cranium, höfuðkúpuna alla. Til að ljúka umræðunni að sinni má nefna að undir kúpuhvolfinu liggur basis cranii, kúpubotn, en að framanverðu er viscerocranium, sem fengið hefur hið skelfilega íslenska heiti iðurkúpa. Líffærafræð- iheitin gefa til kynna að undir viscerocranium heyri andlitsbeinin öll, allt frá nefskeljum til neðri kjálka, og að auki málbein og hlustarbein. Undirritaður vill reyndar halda því fram að latneska heitið sé ekki gott og að þessi niðurstaða úr beinni orðhlutaþýðingu sé staðfesting þess. Iður er gamalt heiti á innyflum manna og dýra. íslensk orðabók Máls og menningar tilgreinir iður sem hvorugkynsnafnorð, sem er eins í eintölu og fleirtölu, en einnig má þar finna iðrar sem kven- kynsnafnorð í fleirtölu og sömu merkingar, líffœri í kviðarholi. Orðsifjabókin rekur upprunann til gríska heitisins enteron, sem merkir þarmur eða görn. Til gamans má einnig nefna, að í Lexicon po- eticum Sveinbjörns Egilssonar er orðmyndin iðr, og lýsingin á merkingu hennar er mjög afgerandi: indvolde eller overliovedet alt, hvad der findes i bryst- og mavehulheden. Iðorðasafn lækna gengur enn lengra: Þau líffœri sem liggja í höfuðkúpu, brjóst-, kviðar- og grindarholi. Allra lengst gengur þó bókin Nucleus latinitatis, sem gefin var út af Orðabók Háskólans árið 1994, en þar er orðið viscus talið merkja: allt þad sem er firer inan Skinned, so sem er Kioted og Istran. Latneska heitið viscerocraniuni má ef til vill réttlæta á þeirri forsendu að um sé að ræða þann hluta höfuðkúpunnar sem verndar andlitslíffærin, en ef heili er talinn til innri líffæra þá er neuro- cranium ekki síður iðurkúpa. Skalli I tengslum við athugun á ofanrituðu rakst undirritað- ur á heitin praecalvus, sköllóttur að framanverðu, og recalvus, sköllóttur bakatil, í bókinni Nucleus Skútabólga 106 Karl G. Kristinsson, læknir, hafði samband og vildi minna lækna á íslenska heitið skútabólga í stað þess að sletta erlenda fræðiheitinu sinusitis. í læknisfræðiheitum Guðmundar Hannessonar má fletta upp sinusitis og finna tvær íslenskar þýðingar, afholsbólga og latinitatis. Þessi latnesku lýsingarorð finnast ekki í íðorðasafninu, en nafnorðin ennisskalli og hvirfil- skalli gætu ef til vill komið að gagni til að tákna mis- munandi tegundir skalla hjá karlmönnum og heitið hnakkaskalli er ef til vill nothæft um tímabundinn skallablett sem stundum sést á hnakka hjá ungbörn- um. Miga og „að míga“ Katrín Fjeldsted, heilsugæslulæknir, kom að máli við undirritaðan og sagðist eiga bágt með að nota nafn- orðið miga við sjúklinga sína. Sagðist hún alin þannig upp að dónalegt væri að tala um að míga. Undirritað- ur er vissulega sama sinnis, en finnst þó að nafnorðið miga sé öllu saklausara og muni missa sitt ruddalega yfirbragð við hæfilega notkun. í Orðsifjabókinni kemur fram að það sé frá 18. öld og merki það að míga. IVIiga er mjög lipurl í samsetningum, svo sem blóðmiga, og því væri skaði að því að missa það úr læknamálinu. Auðvitað má skoða aðra kosti, eins og til dæmis kvenkynsnafnorðið pissing eða karlkyns- nafnorðið pissingur. Undirritaður vill einnig ítreka þá skoðun sína, sem fram kom í 94. pistli við umfjöll- un á íslenskum heitum á penis, að oft verði læknar að hafa fleiri en eitt heiti til reiðu. Þeir verða að geta notað þau orð sem sjúklingum þeirra eru tömust, hvort sem það er að pissa, spræna, kasta vatni eða að míga og gæta þess að forðast þau sem eru óviðeig- andi. Nafnorðanotkun Katrín átti reyndar annað erindi við undirritaðan, en það var að vekja athygli á óhæfilegri nafnorðanotkun, sem undanfarin ár virðist hafa verið að ryðja sér rúms í hérlendum læknisfræðilegum textum. Þar hitti hún beint í mark þegar hún benti á að ólíkt íslenskulegra væri að segja: Sjúklingur pissar (sprænir? mígur?) blóði! en að segja: Sjúklingur er með blóðmigu! Undirritaður hefur lengi haft af þessu áhyggjur, en ekki fengið tilefni til umfjöllunar fyrr en nú. Lbl 1998; 84: 884 skútabólga. Það síðara er merkt V.J., sem þýðir að það er komið úr Sjúkdóma- og dánarmeinaskrá Vil- mundar Jónssonar, landlæknis. Heitið sinus er komið úr latínu og var upphaflega notað um dældir og bugðulaga holrými af ýmsu tagi, svo sem fellingar, flóa, dali, innri rými og jafnvel um hola felustaði. Við- I 106 Læknablaðið/ fylgirit 41 2001/87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.