Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 117

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 117
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 inn með þessari skurðaðgerð. Nú má hins vegar lesa þá skýringu í læknisfræðiorðabók Stedmans að að- gerðin sé kennd við keisara af því að hún hafi verði tilgreind í rómversku lögbókinni Lex cesarea frá því 715 f.Kr. og sé þannig miklu eldri en Gajus Júlíus. Hafa ber það sem sannara reynist. Enska lýsingarorðið elecfive má þýða með ís- lensku orðunum kjörinn, valfrjáls eða með for- skeytinu val-. Elective cesarean section verður þá valfrjáls eða valinn keisaraskurður, andstætt keis- araskurði sem ekki er hægt að komast hjá að gera, til dæmis við bráðatilvik. íðorðasafn lækna birtir eingöngu spurningarmerki „?“ með flettunni elec- tive operation. Slíka aðgerð má nefna valaðgerð, en heitið valkeisaraskurður og styttingin valkeisari eru ekki eins lipurleg og undirritaður vildi. Því er óskað eftir tillögum lesenda. Lbl 1999; 85:1005 Lobus, krabbameinsheiti Lafpi er eitt af þeim orðum, sem sumir læknar vilja nota sem líffærafræðiheiti, en undirritaður hefur aldrei getað vanist. íslensk orðabók Máls og menningar gefur val á nokkrum almennum merkingum: 1. bót. 2. hundur (köttur) með hvítar tœr. 3. eins konar hoppdans. 4. líttunnin kópía afljósmynd. Líffærafræðiheitin frá 1995 nota íslenska heitið blað um lobus og bleðill um lobulus, en heitið lappi finnst þar ekki. Alþjóðleg líffæraheiti Jóns Steffensen frá 1956 birta heitin blað (deild) fyrir lobus og snepill eða bleðil (hverfi) fyrir lobulus. Vera má að finna megi betri heiti en blað og bleðill, en lappi er ekki meðal þeirra. Hjákátlegt þótti undirrituðum til dæmis að heyra heitið framlappaflogaveiki notað í virðu- legum fyrirlestri um þá flogaveiki sem talin er eiga uppruna í lobus anterior. Fyrirlesarinn var reyndar með glettniblik í auga þegar hann lét þetta flakka og hefur sjálfsagt viljað ögra áheyrendum sínum eitthvað, hugsanlega til að finna betra heiti. Erlenda heitið nefndi hann ekki, en vafalítið hefur það verið frontal lobe epilepsy, og orðrétt þýðing Iðorðasafnsins á því mun vera ennisblaðsfloga- veiki. Krabbameinsheiti Hrafn Tulinius, yfirlæknir hjá Krabbameinsfélaginu, hafði samband til að koma á framfæri tveimur krabbameinsheitum og fá umræðu um þau. Bjarni Bjamason, læknir og fyrrum formaður Krabbameins- félags íslands, bjó á sínum tíma til íslensku heitin huldukrabbaniein fyrir það krabbamein sem á ensku nefnist occult carcinonia og levnikrabbamein fyrir það sem nefnist latent carcinoma. Krabbi, krabbamein Áður en lengra er haldið vill undirritaður benda á að heitið krabbi er mikið notað til að tákna illkynja æxli og hefur náð góðri festu í talmálinu sem samheiti fyrir illkynja æxli. Allur almenningur skilur nú hvað við er átt þegar minnst er á brjóstakrabba, lungnakrabba, magakrabba eða ristilkrabba. íslensk orðabók Máls og menningar tilgreinir að krabbi sé: 1. krabbadýr; skjaldkrabbi, 2. krabbamein. 3. sérstakt stjörnu- merki, krabbamerki. íslenskaorðsifjabókinbendirá skyldleika við orð í málum nálægra þjóða, krabbe (danska), krabba (sænska), crabba (fornenska) og krabbe (miðlágþýska). íslenska sögnin að krabba merkir að skrifa illa; káfa, róta í, slá illa, óvandlega. Krabbamein er formlegra heiti og er sennilega meira notað í ritmáli. Upphaflega var gerð tilraun til þess að takamarka notkun þess við illkynja æxli af þekjuuppruna (sjá kassa), en það hefur ekki gengið eftir. Talið er að það að líkja meininu við krabbadýr sé mjög gamalt og byggist á því að læknar fornaldar hafi skoðað illkynja æxli í vefjum eða líffærum og séð þau teygja frá sér ífarandi æxlistotur eins og krabbadýrin teygja út limi sína. Krabbameini má einnig líkja við krabbadýr á þann hátt að bæði séu þekkt að því að grípa fast með griplimum sínum og sleppa síðan ekki takinu. Latneska orðið cancer merkir krabbadýr, en það hefur verið tekið óbreytt upp í ensku til að tákna krabbamein. Heitið carcinoma er komið úr grísku þar sem karkinos merkir krabbi. í færeysku er notaö heitið krabbamein. í dönsku er heitið kræft og í þýsku Krebs. Occult carcinoma Það fyrirbæri, sem Bjarni Bjarnason vildi nefna liuldukrabbamein, skilgreinir Læknisfræðiorðabók Stedmans svo: klínískt ógreint frumœxli, með greindum meinvörpum. Iðorðasafn lækna tilgreinir carcinoma occulta, leynikrabbamein, Krabbamein sem ekki er grunur um fyrr en meinvörp gera vart við sig. Latneska lýsingarorðið occultus merkir falinn, dulinn, leynilegur, óskynjanlegur, frátekinn eða lokaður, en er í læknisfræði notað um það sem er falið, dulið, ekki komið fram eða hefur ekki gefið sig til kynna. Latent carcinoma Hitt fyrirbærið, sem Bjarni vildi nefna leyni- krabbamein. er ekki sérstaklega skilgreint í Læknis- fræðiorðabók Stedmans, en þar er lýsingarorðið Læknablaðið / fylgirit 41 2001/87 117
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.