Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Síða 123

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Síða 123
(ÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 stofnfrumur sem heiti á mesenchymal stem cells og bandvefskímsvaxtarvilluæxli sem heiti á mesenchymal hamartoma. Heitin eru vissulega óþægilega löng, en þeim má einnig skipta og tala þá um vaxtarvilluæxli bandvefskíms og stofnfrumur bandvefskíms, eins og við á. Ungbarn A lúnum miða í sloppvasa fundust orðin ungbarn og ungabarn. Viðmælandi einn hafði tjáð undirrituðum þá skoðun sína að ungbarn væri rétta heitið þegar vísað væri til bama á fyrsta ári. Orðið ungabarn væri hins vegar rangt myndað. Undirritaður tók undir þessa skoðun og hafði þá íðorðasafnið sér til halds og trausts. Enska nafnorðið infant (L. infans) er þar eingöngu þýtt sem ungbarn. Undrunin var hins vegar mikil þegar í ljós kom að Islensk orðabók Máls og menningar birtir bæði orðin og það á þann hátt að þau virðast jafngild. Þá var brugðið á það ráð að fletta upp í Samheitaorðabókinni - og viti menn! - bæði orðin fundust þar og voru útskýrð á sama hátt: óviti sbr. hvítvoðungur. Hvítvoðungur reyndist svo eiga fjölda samheita: barn, ómálga barn, blautabarn, blaut- barn, brjóstmylkingur, kjöltubarn, kornabarn, kornbarn, pelabarn, reifabarn, reifastrangi, smá- barn, ungabarn, ungbarn, vöggubarn, vöggur. Lbl 2000; 86:386 Follow-up time, pouch Laufey Steingrímsdóttir (villa, sjá næsta pistil), næringarfræðingur, bað um álit á íslensku heitunum fylgitími og eftirfylgnitími til að tákna follow-up time. Undirrituðum leist betur á það fyrra, en gæta þarf þess að aðrar samsetningar lýsingarorðsins follow-up séu þýddar á lipran og sambærilegan hátt, svo sem follow-up care, follow-up contact, follow-up examination, follow-up measure, follow-up study og follow-up treatment. Þá þarf einnig að gæta þess að færa ekki hina miklu nafnorðanotkun enskunnar beint yfir í íslensku, en follow-up er oft notað sem nafnorð þegar samhengið er augljóst. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs birtir skýringar á nafnorðinu follow-up: /. hvers kyns aðgerð íþeim tilgangi aðfylgja tilteknu málefni eftir (bréf heimsókn o.þ.u.l.); árétting. 2. (í lœknisfrœði) eftirmeðferð, reglulegt eftirlit með sjúklingi eftir aðgerð eða aðra lœknismeðferð. Skýringar á sagnorðinu to follow-up má finna í hinni rniklu orðabók Websters: a. aðfylgja e-u eftir vandlega og af þrautseigju. b. að auka áhrif e-s með frekari aðgerð. c. að fylgja e-u eftir þar til lausn eða niðurstaða fœst. íðorðasafn lækna birtir hvorki nafnorðið, sagnorðið né neina af ofangreindum samsetningum. í læknisfræðiorðabók Stedmans má finna samsetninguna follow-up study: rannsókn þar sem fólki, sem orðið hefurfyrir áhœttuþœtti eða fengið ákveðna fyrirbyggjandi eða læknandi með- ferð, er fylgt eftir um tíma eða með millibili til að ákvarða um afleiðingar eða árangur. Sé lýsingarorðið follow-up þýtt með forliðnum fylgi- á íslensku, geta ofangreindar samsetningar fengið íslensk heiti þannig: follow-up care verði fylgiumönnun, follow-up contact verði fylgisam- band, follow-up examination verði fylgiskoðun. follow-up measure verði fylgiráðstöfun, follow-up study verði fylgirannsókn og follow-up treatment verði fylgimeðferð. Gaman væri nú að fá viðbrögð lesenda. Tvær tillögur Auðbergur Jónsson, læknir, sendi bréf frá Egils- stöðum og fannst að vonum lítil „reisn“ yfir þýðingar- tillögum undirritaðs í 122. pistli á samsetningunni ascending infection. Hann gengur beint til verks og stingur upp á að íslenska heitið verði einfaldlega sýking neðan frá, „þó vitanlega sé það ekki jafn þráðbein þýðingu. Hafi hann bestu þakkir fyrir. Vilja fleiri leggja orð í belg? Þá sendi Jón Steinar Jónsson, læknir, tölvupóst með tillögu að þýðingu á heitinu atopy (sjá 120. pistil, Lbl 2000;86:207). Hann leggur til að íslenska heitið verði auðnæmi. Þetta er lipurt og laglegt heiti. Um sjúklinga sem auðveldlega fá ofnæmi (hafa ofnæmishneigð) rná segja að þeir séu auðnæmir. Pouch Tryggvi Stefánsson, skurðlæknir, hringdi og var ekki sáttur við þýðingu Iðorðasafns lækna á enska orðinu pouch = kvos. Undirrituðum tókst síðan að finna orðið á þremur stöðum í safninu: pouch of Douglas = endaþarms- og legkvos, blind pouch (cul-de-sac) = blindpoki og branchial pouch (visceral pouch) = tálknpoki. Allar þessar þýðingar getur Tryggvi reyndar sætt sig við, en hann var að fást við að koma íslensku heiti á tilbúinn endaþarm, sem á ensku nefnist ýmist ileal pouch eða ileo-anal pouch. Fyrirbærið er búið til með sérstakri skurðaðgerð, þegar ristillinn hefur verið fjarlægður, til þess að mynda hægðageymi ofan við endaþarmsopið. Bein 123 Læknablaðið/ fylgirit 41 2001/87 123
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.