Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Síða 50
144
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
honum, að þær yrðu að vera í fyllsta lagi, livaS sem þaS
kostaSi. Eu hanu þóttist viss um að finna mætti ráð til
þess að liafa varnirnar í lagi, án þess að grípa þyrfti lil
tekjuskattsins, og liann var þess albúinn að fella hverja
þá stjórn, sem þar færi með rangindi og gengi i berliögg
við skýrustu reglur eignaréttarins. Um þau mál, sem
snertu þjóðarheiðurinn, var hann þó ennþá hreinni og
beinni, því að liann var svo hlátt áfram ættjarðarvinur,
að hann vissi að þjóðin sín hlyti að hafa á réttu að standa,
og þótt hún liefði ekki á réttu að standa, kæmi ekki til
nokkurra mála að játa það. Svo gagnkunnugir voru stjórn-
mála- og blaðamenn þessu heilbrigða viðhorfi hans, að
þeir fóru eftir því i fullu trausti án þess að eyða tíma í að
ganga úr skugga um, livort það væri svona.
Þótt hann játaði auðvitað, að umhætur á þjóðfélags-
löggjöfinni væru nauðsynlegar, fannst honum, að á því
sviði ætti að gera það eitt, sem væri öldungis óhjákvæmi-
legt og ekki heldur meira. Blátt áfram menn lögðu ekki á
sig erfiði við fánalegar tilráunir, en þeir sátu ekki heldur
kyrrir á sprengjunni, þangað til hún rauk með þá í loft
upp.
I trúmálum áleit hann afstöðu sína þá einu réttu og
lieilljrigðu, því að hversu fáu, sem trúa mátti nú á dög-
um, þá neitaði hann ekki eitt augabragð að fara í kyrkju
eða segja, að hann væri kristinn maður, af því að hann
var svp ijlátt áfram. Þvert á móti var hann nú ennþá á-
kveðnari um þessi mál en hann liafði áður verið, því að nú
var andinn horfinn, og því varð að fara sem gætilegast
með hismið, svo að ]>að færi ekki í mola. Þess vegna
hélt hann áfram að vera traustur kyrkjunnar maður —
og liann bjó í Hertfordshire.
Oft talaði liann um vísindi, læknavísindi eða önnur, og
sú var lians hlátt áfram skoðun, að þessir náungar vildu
mata krókinn. Fyrir sitt leyti trúði hann þeirn ekki nema
að því leyti, sem þeir gerðu gagn blátt áfram mönnum.
Síðustu heilbrigðisreglur hagnýtti hann sér auðvitað að