Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Side 54
Þórbergur Þórðarson:
Samherjar Hitlers.
i.
Heiðruðu andstæðingar! Mínir elskanlegu!
Þegar ríkisstjórnir Þýzkalands og Sovétlýðveldanna
gerðu með sér griðasáttmálann iiaustið 1939, hófuð þér,
foringjar sósíaldemokrata, framsóknarmanna og sjálf-
stæðismanna upp nokkuð jafnvægislitil óp að okkur sósíal-
istum og öðrum vinslri mönnum, sem lögðum annan
skilning í þetta millirikjaplagg en persónulegum liags-
munum'yðar þótti hyggilegt að leggja. Ef vanvirðan hefur
ekki stolið úr hugskotstómi yðar blaðaskrifum og munn-
legum áköstum þeirra tíma, þá hlýtur yður efalaust að
reka minni til þess, að þér ávörpuðuð okkur nokkurnveg-
inn svofelldum orðum:
Nú sjáið þið, ofbeldishundarnir ykkar, svart á hvítu,
hvort það er ekki satt, sem við höfum alla tíð haldið fram,
að nazismi og kommúnismi séu sama tóbakið. Að í Rúss-
landi ríkir sama þjóðskipulag og i Þýzkalandi. Að því er
í báðum þessum einræðisvítum haldið uppi með kúgun,
ofbeldi og áþján. Að Stalín og Hitler eru pólitískir jáhræð-
ur, sömu landræningjarnir, sem nú hafa komið sér saman
rim að skipta upp á milli sin heiminum og afmá allt lýð-
ræði og persónufrelsi á jörðinni. Nú eruð þið, sem hafið
þótzt vera á móti nazisma, orðnir samherjar Hitlers. ,.Get-
ið þið nú fylgt Rússum lengur?“ Skammizt þið ykkar
ekki? Slíka þjóðníðinga, slíka ættjarðarleysingja, slikar
landráða-eiturplöntur og ykkur, ætti að slá niður, ætti
að svipta öllum þegnréttindum og reka til Rússlands. Þvi
farið þið ekki til Rússlands?
Dýpra risti ekki pólitískur þroski yðar og hærra gnæfði