Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Qupperneq 55
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
149
ekki pólitískur munnsöfnuður yðar haustið 1939. Það var
Ólafsmálið fræga í ennþá siðlausari mynd. Hvílíkir óum-
breytanlegir krakkar, drottinn minn djná!
Við reyndum að svara yður með þeim rökum, að griða-
sáttmálinn milli þýzku og rússnesku stjórnanna væri bein
afleiðing af alþjóðapólitík lýðræðisríkjanna á síðustu ár-
um. Við rifjuðum upp fyrir yður þá marg-bókfestu stað-
reynd, að Rússland hefði, siðan það gekkíÞjóðabandalagið,
lagt sig mjög í framkróka til að ná samvinnu við lýðræðis-
ríkin gegn útþenslu fasismans. En nú liefði það sýnt sig,
að slílc samvinna var með öllu óhugsanleg, meðan ihalds-
forkólfarnir höfðu óskoruð völd í lielztu lýðræðisríkjun-
um. Þess vegna hefði Rússland tekið að ýta undir sam-
fylkingu vinstri aflanna í þeirri von, að þau yrðu það sterk,
að þau fengju knúð fram samvinnu gegn fasismafárinu
og stemmt stigu fyrir vfirvofandi heimsstyrjöld. En þess-
ari viðleitni liefði í öllum lýðræðislöndunum verið tekið
með berum fjandskap af hálfu ihaldsflokkanna og sósíal-
demokratanna með R. Alþjóðasamband verkamanna i
broddi fylkingar. Enga samvinnu við Rússa! Engin mök
við kommúnista! Og þar sem samfylkingin liefði náð þvi
afli, að vinstri kraftarnir liefðu kornizt til valda, þar hefði
henni verið sundrað með undirróðri og svikum eða barin
niður ineð blóðugu ofbeldi, t. d. í Frakldandi og á Spáni.
Við reyndum ennfremur að gera yður minnuga þess,
að atgerðir Rússlands í Þjóðabandalaginu og Spánarnefnd-
inni sælu hefðu beinzt að þessu sama marki. Það hefði
krafizt þyngstu refsingar samkvæmt lögum Þjóðabanda-
lagsins á hendur Ítalíu, þegar hún lióf herförina til Abessín-
iu, eins af löndum Randalagsins. Það hefði hvað eftir
annað beitt sér fyrir því bæði í Þjóðabandalaginu og Spán-
arnefndinni, að hinni löglegu stjórn Spánar yrði veitt að-
stoð gegn fasistauppreisninni. Það hefði gert allt, sem því
var unnt til að fá Bandalagið til þess að varðveita sjálf-
stæði Austurríkis. Það hefði haft allar ldær í frammi til
þess að fyrirgirða uppgjöf Tékkóslovakiu.