Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Qupperneq 69
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
163
Þessi óvinur ræður yfir 300 miljónum manna, auk þess
þjálfaðasta iðnaði og einhverri fullkomnustu hergagna-
gerð í heimi, sem allt erfiðar heint eða óheint í þjónustu
þessara glæpa. Þar að auki hefur honum tekizt að svæla
undir sig geysilegum hergagnabirgðum úr hernumdu lönd-
unum, sem beint er að sama marki. Úr liinu stálgráa veldi
hans steypist austuryfir sléttur Rússlands óstöðvandi
straumur hinna hraðvirkustu morðtækja, og herir hans
flæða yfir í miljónum.
Ég skal játa, að Rússar hafa ekki staðið eins fast fyrir
þessu fári og ég hafði gert mér í hugarlund, ef allt er um
undanhald þeirra einsog sýnist á yfirborðinu. En hitt er
óumdeilanlegt, að byltingin gegn Stalin og „kliku hans“,
sem var ein af trúardogmum yðar, er ennþá ókomin, og
það sjást engar likur til, að hún geri yður dýrlega á himni
eða jörðu. Allir þeir Rússar, sem styrjöldin hefur ennþá
náð til, virðast berjast sem einn rnaður og það af slíkri
móralskri orku og alvöru, að þar sést ekki misræmi í
nokkru handtaki. Og mig grunar, að þér verðið farnir að
verða nokkuð voteygir, áður en þér sjáið vimpil zarsius
eða örvar II. Internasjónali blakta á turnum Kreml.
Virðist yður þetta vitna með yður, að þessu fólki liafi
fundizt það vera þjakað og lcúgað af grimmum valdhöf-
um? Er það yður ekki heldur ofurlítil bending i þá átt, að
þvi finnist eitthvað liafa verið fyrir það gert, sem vert sé að
leggja töluvert í sölurnar fvrir? Ef til vill hefur yður eklci
tekizt að sleppa þeirri staðreynd framhjá eyrum yðar, að i
Rússlandi hefur hverjum vigfærum manni verið fengið
vopn í hönd. Og þér, sem hafið titrað á beinunum og gert
landið að vitfirringabæli útaf nokkrum kommúnistahræð-
um, þér ættuð að skilja, hvað það gæti þýtt að vopna 180
miljóna þjóð, sem mestöll væri í uppreisnarhug gegn lít-
illi „ofbeldisklíku“. Getið þér bent mér á eitt einasta auð-
valdsriki, sem jivrði að vopna alla vígfæra þegna sína?
Sennilega finnst vður samt eldd ástæða til að endurskoða
heimildir yðar um Sovétríkin. Líklega eruð þér svo inn-
11*