Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 74
64 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Þjóðir hef ég afmáð af jörðinni, um lönd hef ég farið herskildi og lagt þau í auðn. Allt, sem þér hafið krafizt af mér.----- Ennþá ákalla menn mig, og ég kem. Ég lít yfir löndin — jörðin er sóttheit og sjúk og úti í geimnum væla villtir fuglar. Þá er hið illa í algleymingi! Þá er böðulsöld! I „Böðlinum“ mælir Lagerkvist spámannlegum viðvörunarorð- um. Það liðu ennþá sex ár, áður en hinn skuggalegi spádómur um algleyming hins illa rættist að fullu. Á þeim árum heyrist hann oft brýna rödd sína gegn guðum tímans. Skáldið er ekki kristinn. Ein- hvers staðar segir hann um sjálfan sig, að hann sé „trúaður guð- leysingi“. Hann trúir ekki á guð, hann trúir ef til vill ekki einu sinni á að hið góða sigri hið illa. En trú hans á mannkynið og þau menn- ingarverðmæti, sem það hefur skapað, er þrátt fyrir allt óhagganleg. Við ferð hans til Grikklands og Gyðingalands öðlast sú trú nýjan styrk. Menningin er dýrðleg eign, sem hægt er að svipta oss, ef vér viljum ekki berjast fyrir hana. Sigur er óviss. En baráttan er eilíf og óhj ákvæmileg. Hún er aðalsmerki mannsins. Þannig hljóðar trúarjátning Lagerkvists í bókinni, „Den knutna naven“ (1934). í smásögusafninu „/ den tiden“ (1935) klæðir hann bituryrta gagnrýni sína í ævintýrabúning, ekki ósvipað því, sem Jonatan Swijt gerði í sögum sínum um Gulliver. Þar dregur Lagerkvist hina andlausu múgþjálfun sundur í blóðugu háði. Eitt ævintýrið fjallar um hernaðaruppeldi það, sem börnin fá í löndum einvaldanna. Leikritin „Mannen utan sjal“ (1936) og „Seger i mörker“ (1939) bera skýran svip þess, sem er að gerast, og Lagerkvist heldur þar áfram að berjast gegn skoðanakúgun, ofbeldi og blóðsúthellingum. 011 verk Lagerkvists, sem hingað til hafa verið nefnd, eru gefin út áður en núverandi heimsstyrjöld hófst. En eins og tímabilið 1933—1939 var síðasti áfanginn í undirbúningi styrjaldarinnar, þannig er skáldskapur Lagerkvists á stríðsárunum hámark og full- komnun þeirrar baráttu, er hann hafði háð undanfarin ár. Síðustu kvæðabækur lians, „S&ng och strid“ (1940) og „Hemmet och stjarnan“ (1942) eru að sjálfsögðu lítt kunnar hér, og þess vegna er ég nokkuð óspar á tilvitnanir. Nafnið „Sáng och strid“ hljómar eins og stefnuskráryfirlýsing, og er það líka. Eitt kvæðanna í safninu nefnist Nya vapen:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.