Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 6
Timarit Máls og menningar
framleiðslunnar sé ekki í samræmi við það, sem við teljum æskilegt. Jafn-
framt verður að hafa í huga, að mikið skortir á fulla hagnýtingu á afurðum
okkar þannig að möguleikarnir á stórfelldri aukningu þjóðarteknanna eru
fyrir hendi og raunar á næstu grösum.
Það er erfiðara að henda reiður á síðari röksemd forsvarsmanna stóriðj-
unnar, um hið væntanlega hagkvæma verð á raforku til landsmanna.
Sannleikurinn er sá, að hér er aðeins um órökstudda fullyrðingu að ræða.
Það segir sig sjálft, að að öðru jöfnu framleiðir stórvirkjun ódýrari orku en
smávirkjun.
Eg er ekki læknimenntaður maður, en mér virðist forsendan: „að öðru
jöfnu“ ekki eiga við þegar rætt er um Búrfellsvirkjun.
Sérfræðingur Raforkumálaskrifstofunnar í vatnamælingum, Sigurjón Rist,
ritaði árið 1962 grein um Þjórsárísa í ársrit Jöklarannsóknarfélags íslands.
I grein þessari lýsir Sigurjón Rist því hvernig Þjórsá hegðar sér að vetrar-
lagi og greinir frá hrikalegum ísamyndunum á ýmsum stöðum í ánni, ekki
sízt í nágrenni við Búrfell.
Sigurður Thoroddsen verkfræðingur, sem er einn reyndasti sérfræðingur
okkar í sambandi við virkjanir fallvatna, hefur látið það álit sitt í ljós „að
hvergi í nokkurri á á Islandi, og þó víðar væri leitað, sé krapamyndun við-
líka mikil og í Þjórsá, ofan við hinn fyrirhugaða virkj unarstað.“ (Tíminn,
11.2. 65.)
Hver leikmaður sér í hendi sér að hér er um alvarlegar viðvaranir að ræða,
en hvað sem segja má um réttmæti þeirra eða ekki þá er hilt staðreynd, að
rannsóknum í sambandi við virkjun Þjórsár við Búrfell er alls ekki lokið.
Virðist þó vera eðlilegt að ljúka þeim rannsóknum áður en hafin er svo gífur-
leg fjárfesting sem hér er um að ræða.
En valdamenn þessarar þjóðar virðast ekki vilja taka tillil til hinnar gömlu
og góðu reglu Rómverjanna: Að flýta sér hægt. Svo mjög vilja þeir hraða
málum, að það hvarflar að manni hvort ekki liggi einkennilegur fiskur undir
steini, hvort aðalatriðið sé ekki að fá erlenda aðila lil að festa fjármagn hér
á landi.
Þá er annað atriði, sem öllum má vera ljóst og er ákaflega þýðingarmikið
í sambandi við væntanlegt verð á raforkunni til landsmanna.
Við íslendingar höfum ailmikla reynslu fyrir því, að áætlanir um bygg-
ingarkostnað við margvíslegar framkvæmdir hafa farið langt fram úr því,
sem reiknaÖ var með, ekki sízt á siðustu árum eftir að verðbólga tók svo til
hömlulaust að tröllríða þjóðinni.
308