Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 93
leyst þá gátu, hvar bærinn kann að
hafa staðið. í sjálfu sér er það merki-
legt fyrirbæri, að lega bæjarins skyldi
hafa gleymzt svo gersamlega, þar sem
Laxdæla saga hefði í rauninni átt að
halda minningu hans á lofti eftir að
hún var rituð. Hins ber þó að gæta,
að hér var um lítið kot að ræða, að
því er virðist, og minningin um
skammbýlan bústað gat verið hverf-
ul, þótt fróðum manni á þrettándu
öld tækist að grafa hana úr gleymsku.
Þó hefur fræðimönnum einnig komið
til hugar, að höfundur Laxdæla sögu
hafi skáldað frásögnina af Melkorku-
stöðum, og sé það rétt ályktað, þarf
ekki að leita ýkja langt að fyrir-
myndinni.
Heimildir síðari alda geta annarra
Melkorkustaða og í annarri sveit, og
virðist þar ef til vill vera um fornt
evðibýli að ræða. í Jarðabók þeirra
Arna og Páls er svofelld grein, sem
útgefendur segja verið hafa á lausum
seðli í handritinu: „Melkorkustader
nefna menn í Dýrastaða landi, þar
sem tóftaleifar sjást á hól einum í
mosamó. Efast menn hvort þar hafi
byggð verið og vita ekkert til þess nema
nafnið. Ekki verður þar byggt nema
Dýrastöðum til meins og skaða, og
þar með heyskaparvon engin.“ Það
virðist í fljótu bragði vera undarleg
tilviljun, að bæjarnafni þessu, sem á
að hafa týnzt svo gersamlega í Laxár-
dal í Dölum, skuli skjóta upp kollin-
um suður í Norðurárdal í Mýrasýslu.
Um írsk atriði í Laxdœla sögu
Hver er skýringin á þessu? Voru til
tvö kot, annað í Laxárdal og hitt í
Norðurárdal, sem bæði voru kennd
við hið einstæða heiti Melkorku?
Slíkt þykir mér heldur ósennilegt.
Eða þekkti höfundur Laxdælu til
Melkorkustaða í Norðurárdal og not-
aði síðan nafnið handa bústað þeim,
sem Höskuldur er látinn fá Melkorku
í sögunni? Ef ekki hagaði svo til, að
þeir Árni Magnússon og Páll Vída-
lín voru báðir mjög glöggir menn og
Árni sjálfur úr Dölum vestan, gætu
menn ef til vill látið freistast til að
leggja áherzlu á það, að greinin um
Melkorkustaði hefur varðveitzt á
lausum seðli og hefði því getað lent
á skökkum stað í bókinni. En slíkt
eru ástæðulausar bollaleggingar,
enda sker lega Melkorkustaða í Dýra-
staðalandi úr um það, hvar þeirra sé
að leita. Dýrastaðir eru ekki aðrir
til en í Norðurárdal. Þess má geta
hér til gamans, að sumir fræðimenn
hafa talið Ólaf hvítaskáld höfund
Laxdælu. Hann átti um hríð heima á
Borg og í Stafholti, þar sem hann
hafði skóla, og gat honum því verið
kunnugt um örnefni eða bæjarheiti í
Norðurárdal og þegið nafnið þaðan,
ef hann var höfundur sögunnar. En
frambærileg rök hafa ekki enn komið
fram því til stuðnings, að Ólafur
hvítaskáld hafi ritað Laxdælu, og
verður því ekki mál þetta rætt nánar
að sinni.
395