Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 17
sveitir Viet Minh á friðsamlegan hátt
tekið allar stjórnarskrifstofur frá
Hanoi til Saigon, skipulagt nýtt
stj órnarkerfi og höfðu nú að heita
niátti völd í öllu landinu. Japanir
héldu sig í herbúðum sínum og skiptu
sér ekki af neinu, svo að naumast
kom til nokkurra átaka. Innbornir
stjórnmálafangar voru leystir úr
haldi, sömuleiðis gyðingar og and-
fasistar af Evrópustofni. Aðeins
frönsku hersveitirnar voru áfram í
haldi. Þegar lýðveldið Vietnam hafði
lýst yfir sjálfstæði sendi það orðsend-
ingar til Frakklands, Bandaríkjanna
— og raunar allra höfuðborga heims
— og fór fram á viðurkenningu,
aðild að Sameinuðu þjóðunum og
heimild til að afvopna Japani.
Á meðan þetta var að gerast sam-
þykktu bandamenn í Potsdam að
Frakkar ættu enn Vietnam. Yfirmenn
bandamanna komust einnig að þeirri
niðurstöðu að eitthvað þyrfti að gera
fyrir Sjang Kæsék, sem bar sig upp
undan því að hann væri ekki metinn
að verðleikum. Því var kínversku
þjóðernissinnunum fullnægt með því
að leyfa þeim að afvopna japönsku
herina í Indókína fyrir norðan sext-
ánda breiddarbaug. í suðurhluta
landsins áttu Bretar að vinna það
verk, sem einskonar umboðsmenn
I'rakka er síðar áttu einnig að taka
við af hernámsliði Kínverja í norð-
urhlutanum. Bandamenn höfðu ekki
fyrir því að skýra Vietnam-mönnum
StríS og friður í Vietnam
frá því að Frakkar væru að koma
aftur.
Embættismenn lýðveldisins í Sai-
gon fögnuðu fyrstu brezku liðssveit-
unum sem andfasistískum banda-
mönnum. Douglas Gracey hershöfð-
ingi tók þegar upp samninga við yfir-
mann Japana, Terauchi hershöfð-
ingja. Gracey neitaði að ræða við
vietnamska forustumenn sem vildu
semja um samvinnu við afvopnun
Japana. Samkvæmt fyrirmælum Breta
leystu Japanir úr haldi 5.000 menn
úr frönsku útlendingahersveitinni og
þeir voru þegar í stað búnir vopnum.
Þvínæst lýsti Gracey yfir hemaðar-
ástandi og skipaði hersveitum og lög-
reglu Vietnam-manna að rýma Saig-
on. Fyrir dögun 23. september hrifs-
uðu hinar endurvopnuðu útlendinga-
hersveitir völdin og tóku ráðhúsið,
þar sem nýja stjórnin hafði haft að-
setur. Opinberar byggingar voru
teknar með valdi, hundruð manna
handtekin, göturnar lituðust blóði.
Vietnam-menn tóku að verjast í út-
hverfunum.
Snemma í október komu nýjar
franskar hersveitir með bandarískan
vopnabúnað. Yfirráðasvæðið um-
hverfis Saigon var aukið jafnt og
þétt. í stað þess að Japanir væru af-
vopnaðir mælti Gracey hershöfðingi
svo fyrir að þeir skyldu taka þátt í
að brjóta heimamenn á bak aftur.
Sveitir Terauchis voru hervæddar á
nýjan leik, og höfðu Frakkar og Jap-
319