Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 51
Meleyjarþáttur
þar drœgi til tíðinda. Og þeir munu heldur reiða sig á oss en aðra, þar sem
hugarþel vort er runnið af sömu rót.
Aþenumenn: En sá sem býst til að veita öðrum vígsgengi, þá stoðar hann
lítt vinsemd liðsbeiðanda; hitt gegnir honum hetur að sá sé vel vopnum bú-
inn; og að þessu munu Spartverjar hyggja flestum fremur. Þeir reiða sig
sjaldan á vígbúnað sjálfra sín, og hafa jafnan með sér marga bandamenn er
þeir veita atgöngu nágrönnum sinum. Og munu þeir víst ekki hætta sér út
í eylönd meðan vér ráðum skipasiglingum.
Meleyingar: Þcir geta þá sent bandamenn sína. Krítarhaf er vítt, og þeim
auðveldara undan að komast sem þar ætlar sér að dyljast en yður að fanga
hann þó þér hafið þar ofurefli liðs. En bregðist þeim þetta ráð, þá munu þeir
venda vopnum sínum gegn landi yðar eða bandamönnum yðar, þeim er
Brasídas1 átti óunna. Og eru þá orðin mikil hamingjuskipti þegar lönd
bandamanna yðar og svo ættland sjálfra yðar er í veði, en ekki yfirráð yðar
yfir fjarkonmum eylöndum sem yður varðar ekkert um.
Aþenumenn: Vér höfum þá fyrr ázt orð við og Spartverjar, og vitið þér
fullvel að Aþenumenn hafa enn ekki runnið úr umsát fyrir neinum. Hitt furð-
ar oss, að vér höfum nú setið hér á ráðstefnu alllanga stund, og hafið þér þó
ekki minnzt á neitt það sem flestum þætti sér helzt úrræðavon í, og kváðuð
þó fyrir öndverðu að heill ættlands yðar væri í húfi; þér reiðið yður á
ókonma atburði, en eruð örþrifaráða við þeirri hættu sem nú vofir yfir yður.
Vér skiljum nú þetta tal um sinn; en vér vonum til yðar að þér sjáið að
yður og leiðið þetta mál til lykta af hyggindum. En það væri mikið heimsku-
ráð ef þér létuð sæmd og metnað glepja yður, því þaðan stafar þeim jafnan
ógæfa sem á raunir og vansæmd yfir höfði sér. En margan mann ginnir tál-
dræg sæmd með orðsins sætum hljómi, og þótt hann sjái fyrir að hverju
stefnir, þá má hann ekki rönd við reisa, en vinnur í óvizku sinni sjálfum sér
þann skaða sem verður seint bættur, og meiri vansæmd en honum var búin
að upphafi. Og hafið því holl ráð, og ætlið yður það enga óvirðingu þótt þér
vægið fyrir voldugri þjóð sem mælist til lítilræðis og skorar á yður, að þér
gerið samband við hana og gjaldið skatt, en hafið sjálfir yfirráð yfir landi
yðar. En séu yður gerðir tveir kostir, og er annar grið en annar ófriður, þá
hikið yður ekki við að velja þann sem yður er hollari, en gjaldið varhuga við
þrætugirni og stælum. Því sá býr bezt í haginn fyrir sér sem lætur ekki hlut
1 Brasídas var spartverskur hershöfðingi; hann vann marga og fræga sigra á AJjenu-
mönnuni í Þrakíu á árunum kringum 424 og vann af þeim margar borgir, en féll við
Amfipolis árið 422.
23 TMM
353