Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 47
Meleyjarþáttur
skipum frá Kíos og tveimur lesbeyskum; en í liði þeirra voru tólf hundruð
riddarar þungvopnaðir, þrj ú hundruð bogmenn á fæti, en tuttugu ríðandi, og
fimmtán hundruÖ riddarar bandamanna og eylendinga. Meleyingar voru lak-
verskir að ætt, enda vildu þeir ekki lúta Aþenumönnum svo sem aðrir eylend-
ingar, en sátu hjá í ófriðnum fyrsta kastið og veittu hvorugum. En þegar
Aþenumenn reyndu að kúga þá til hlýðni og herjuðu á landið, hófu þeir ófrið
dullaust.
Nú koma Aþenumenn til eyjarinnar svo búnir sem fyrr segir, og slá land-
tjöldum. Þeir Kleomedes Lýkomedesson og Teisías Teisímakosson voru fyrir
liðinu, og gerðu þeir sendiboða á fund Meleyinga með friðarboð áður en
þeir herjuðu á landið. En Meleyingar leiddu þá ekki á þjóðfund, en buðu
þeim að tala á öldungasamkomu og segja erindi sitt. Og því næst hófu Aþenu-
menn máls og mæltu á þessa leið:
Með því að þér bannið oss að flytja mál vort við alþýðuna á þjóðfundi, og
óttizt að vér munum leiða hana afvega er hún heyrir vildarboÖ vor og ein-
sæjar röksemdir tálmalaust, en það er í augum uppi að fyrir þá sök buðuð
þér oss að tala á öldungasamkomu, — þá er nú hér óhætt um yður þar sem
þér sitjið. Vér heimtum eigi að þér svarið málflutningi vorum í einu lagi,
heldur skuluð þér íhuga hverja grein um sig og taka frain í fyrir oss ef þér
finnið að einhverju. Og svarið nú fyrst hvort þér fallizt á mál vort.
Óldungar Meleyinga svöruðu: Það er að vísu sanngjarnt, enda höfum vér
ekki á móti því, að vér ræðum mál vor í bróðerni. Hitt þykir oss sem þar
skjóti nokkuð skökku við er þér eruð komnir hingað til lands með her manns,
en biÖuð eigi átekta, enda hyggjum vér að þér ætlið sjálfuin yður dómsorð
um það sem hér verður mælt á ráðstefnu vorri; og munu þar að vísu verða
þær lyktir, ef réttur vor má sín meira og vér vægjum eigi fyrir yður, að þér
sækið oss þá með ófriði, en hneppiö oss í þrældóm ef vér lilýöum yöur.
Aþenumenn: Ef þér eruð hingað komnir til fundar viö oss til að ræöa
grunsemdir yÖar um atburði á ókomnum tímum, eða meÖ öörum ásetningi
en þeim að ráðast um þrif ættlands yðar, þá fellum nú þetta tal; en sé hitt
áform yðar, þá höldum áfram ráðstefnunni.
Meleyingar: VirÖiÖ oss til vorkunnar þó vér séum fjöloröir í vandræðum
vorum og tökum til margra úrræða. En með því aö vér erum hér saman
komnir til að ráðast um farsæld ættlands vors, þá höldum áfram talinu sem
þér bjóðið, ef yður lízt svo.
Aþenumenn: Vér munum nú ekki telja langar tölur um með skrautlegu
orðfæri, að vér unnum Persa og eigum svo vald yfir öllum Grikkjum, né
349