Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 26
Tímirit Máls og menningar
í trássi við Genfarsamningina lóku
C.I.A. og starfsmenn bandaríska
sendiráðsins, og síðar herforingjar í
einkennisbúningum, að flytja her-
gögn til Laos.
Laos var ekki skipt af neinum
sautjánda breiddarbaug sem væri af-
vopnað svæði. í norðurhlutanum
voru litlar skæruliðasveitir undir
stjórn Souphanouvongs prins sem
barizt höfðu með Vietnam gegn
Frökkum. í milliflokki var Souvanna
Phouma prins, hinn hlutlausi forsæt-
isráðherra nýmyndaðrar samsteypu-
stjórnar. Til hægri var Boun Oum
prins sem hafði unnið með Frökkum.
(„Konungurinn“ var ómerkingur).
Bandarikjamenn völdu sér Boun Oum
prins. A fáeinum árum eyddum ,,við“
hálfum miljarði dollara í þessu gervi-
konungsriki í kádiljáka og önnur
leikföng handa hirðmönnum kon-
ungsins og í mútur til þess að kaupa
atkvæði á þingi Laos, en fyrst og
fremst þó í hergögn. Þetta voru við-
vaningslegar starfsaðferðir. Allt í
einu sigruðu vinstriöflin í kosning-
um, og „við Bandaríkjamenn“ vor-
um allt í einu farnir að ausa fé í heri
sem stóðu öfugu megin — voru
stuðningsmenn Norður-Vietnams.
Reynt var að leiðrétta þessa villu
með því að koma á laggirnar her
undir forustu Phoumi Nosavans hers-
höfðingja (sem var fyrrverandi skjól-
stæðingur Frakka), og tókst honum
að ná höfuðborginni, Vientiane, með
valdráni síðla árs 1960. En síðan var
heppnin ekki með honum. Souphan-
ouvong slapp úr haldi, hélt aftur í
norðurveg og skipulagði á nýjan leik
skæruliðasveitir þær sem sundrazt
höfðu. Hann fór fram á aðstoð frá
Norður-Vietnam, og fékk einhverjar
undirtektir. í Vientiane hafði orðið
valdrán frá vinstri undir forustu ungs
fallhlífarforingja, Kong Le (sem C.
I. A. hafði gert sér miklar vonir um).
Þegar Kong Le var síðan hrakinn
frá Vientiane gekk hann í lið með
Souphanouvong. Þeir endurskipu-
lögðu herir sem Phoumi hershöfðingi
hafði reynt að eyða höfðu nú hæði
stuðning 10.000 Vietnam-manna,
fengu vopn sem Rússar köstuðu niður
úr lofti og gerðu gagnárásir á heri
Phoumi (sem taldir voru nema
80.000 manns). Herir Phoumi
sundruðust andspænis miklu fámenn-
ari sveitum. 1961 voru stuðnings-
menn Souphanouvongs komnir langt
fram hjá Vientiane og höfðu opnað
samgönguleið til Suður-Vietnams.
Bandarískir sjóliðar voru settir á
land í Thailandi og Bandaríkin sam-
þykktu í snatri að haldin yrði ný
Genfarráðstefna. Meðan undanhald
Phoumi hélt áfram gekk Averell
Harriman frá samkomulagi til þess
að bjarga því sem bjargað yrði, og
gengið var frá vopnahléi. Samkvæmt
Genfarsamkomulaginu frá 1962 var
prinsunum þremur í Laos falið að
ganga frá samsteypustjórn sín á
328