Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Blaðsíða 52
Tímarit Máls og menningar
sinn undir liggja fyrir jafningjum sínum, en er eftirlátssamur þegar hann
veit sér afls vant, en hófsamur við lítilmagnann.
Vér víkjum nú héðan brott af ráðstefnunni meðan þér leitið yður ráðs;
en þér skuluð þá hafa hugfast, að um ættland yðar er að tefla og aleigu, en
auðna þess er undir komin því ráði sem þér takið nú.
Að því mæltu gengu Aþenumenn af ráðstefnunni, en Meleyingar volkuðu
það sín í milli hvern kost skyldi upp taka. Og þeir komu sér saman um að
hafa öll hin sömu andsvör sem fyrr, og mælíu á þessa leið:
Áform vor, Aþenumenn, eru enn hin sömu og á öndverðri ráðstefnu vorri.
Vér höfum nú byggt þetta land sjö hundruð ár, enda munuð þér nú ekki ráða
frelsið undan oss á einni svipstundu. En vér reiðum oss á hamingjuna og þau
goð sem allt hingað til hafa veitt oss ásjá, en því næst á fulltingi manna og
liðsinni Spartverja, og kostum svo að verja oss. Vér viljum vera yðar vinir,
en eiga frið við yður báða, Spartverja og Aþenumenn; og því bjóðum vér
að vér gerum nú sætt með oss, þá er oss sómi báðum, en þér farið síðan brott
héðan.
En þegar Meleyingar höfðu goldið þessi andsvör, þá slitu Aþenumenn ráð-
stefnunni og mæltu á þessa leið:
Oss þykir nú einsætt af ráðsályktun yðar, að þér einir allra manna ætlið
yður meira traust í ókomnum atburðum og svipulli hamingju en hinu er þér
vitið af sjón og raun, og er illt óvissa von að kaupa. En þar er þér reiðið
yður á liðsinni Spartverja, þá er þar skemmst af að segja að það er yður
sagt en sýnt ekki.
Að því mæltu fóru sendimenn Aþenumanna aftur til herbúðanna. Og með
því að Meleyingar höfðu í engu vægt fyrir þeim, þá hófu hershöfðingjar
þeirra samstundis styrjöld og slógu hring um bæinn og skiptu verkum með
herdeildunum. Því næst skildu þeir eftir herlið bæði sjálfra sín og banda-
manna sinna, landher og skipalið, og hélt það áfram umsátinni, en sigldu
burt með meginherinn.
En samtíðis fóru Argverjar með her upp á Flíasaland, en Flíasar og arg-
verskir liðhlaupar greiddu þeim atlögu úr launsátri og drápu átta tugi manna.
Aþenumenn fóru ránsferð úr Pýlusborg um lönd Spartverja, og fengu mikið
herfang. En Spartverjar héldu gerða sátt og hófu ekki ófrið af þeim sökum,
en gáfu orlof þeim er fýsti til að fara ránshendi um lönd Aþenumanna. Þá
kom upp ósamþykki milli Korinþumanna og Aþenumanna, og börðust þeir.
354