Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 12
Tímarit Máls og menningar
fyrirtækið vilyrði um, að það mundi taka til vinsamlegrar athugunar að
reisa nýja aluminiumverksmiðj u í nágrenni Akureyrar, eftir að 60 þús.
tonna verksmiðju syðra yrði lokið ...“
Verksmiðjan nyrðra á einnig að hafa 60 þús. tonna afköst á ári. Orkuna á
verksmiðjan að fá frá væntanlegri Dettisfossvirkjun.
Swiss Aluminium vill fá samning um orkukaup frá báðum virkjununum
á föstu verði til næstu 50 ára.
Það má skilja fyrr en skellur í tönnum.
í hnotskurn lítur þá málið þannig út: Þegar búið verður að fullnýta virkj-
unina viS Búrfell verður raforkumagnið 210 MW. Af því orkumagni mun
alúmínverksmiðjan í Straumsvík þurfa meirihlutann eða 110 MW.
Þegar búið verður aS fullnýta virkjunina viS Dettifoss verður raforku-
magnið 165 MW. Af því orkumagni mun alúmínverksmiSjan í nágrenni
Akureyrar þurfa meirihlutann eða 110 MW.
MeS öðrum orðum: Hinn erlendi auðhringur krefst þess að fá til sinna
nota 220 MW af 375 MW, sem myndu verða framleidd í báðum raforku-
\erunum. Og hann krefst þess að fá þetta orkumagn í hálfa öld!
Fjárfesting hins erlenda auðhrings í alúmínverksmiðjunum tveim mun
verða yfir 6000 milljónir króna.
ÞaS er hærri upphæð en öll fjárfesting íslendinga í sjávarútvegi og iðnaSi.
Dylst þá nokkrum að hinn erlendi auðhringur væri búinn aS ná undirtök-
unum á efnahagslífi okkar, að hann væri orðinn drottinvaldur yfir auðlindum
íslands og efnahag þjóSarinnar?
VII
Við íslendingar erum fyrst og fremst framleiðendur matvæla. Sem slíkir
höfum við einstæða möguleika. Fyrirsjáanlegt er aS eftirspurn eftir matvæl-
um mun fara hraðvaxandi á næstu árum og áratugum. Allt að því helmingur
jarðarbúa býr við sult og seyru, en með vaxandi efnahagslegu sjálfstæði
hinna nýfrjálsu ríkja munu skapast stórfelldir markaðir, ekki sízt fyrir þær
þjóðir, sem framleiða svo eggjahvíturík matvæli sem við gerum.
Okkar mikla verkefni liggur á þessu sviði.
í SvíþjóS er fyrirtæki, sem heitr ABBA FYRTÁRNET. Árlega leggur þetta
fyrirtæki niður úr 45.000 tunnum af tslandssíld og selur úr því magni
225.000 kassa af gæðavöru á heimsmarkaðinum.
314