Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 22

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 22
Tímarit Máls og menningar og afkróa meginhluta franska hers- ins. 20. marz 1954 kom franski yfir- hershöfðinginn Paul Ely beina leið til Washington frá Indókína til þess að skýra frá því að Frakkar væru að þrotum komnir. Hann fór fram á taf- arlausa og beina bandaríska ihlutun til þess að bjarga hinum innilokuðu herjum. Að öðrum kosti yrðu Frakk- ar að fallast á tilboð Vietnams um vopnahlé gegn því að kölluð yrði saman alþj óðaráðstefna til þess að semja um uppgjöf Frakka. Franskar uppljóstranir liafa síðan gefið til kynna að Bandaríkjamenn hafi fyrst svarað tveimur mánuðum áður en friðarráðstefnan hófst í Genf. Að því er Georges Bidault (ut- anríkisráðherra Frakka um þær mundir) segir, bauð Dulles utanríkis- ráðherra honum tvívegis að banda- rískum kjarnorkusprengjum skyldi beitt bæði gegn Kína og Vietnam — til þess að fylgja eftir munnlegum hótunum um „grimmilega hefnd“. Að því er Roscoe Drummond og Gas- ton Coblentz greina frá í nýútkom- inni bók um Dulles sagði Georges Bidault að fyrra tilboðið hafi verið um það að „einni eða fleirum kjarn- orkusprengjum yrði kastað á lands- svæði kínverskra kommúnista í nánd við landamæri Indókína“ til þess að spilla aðdráttarleiðum milli Kína og Vietnams. Bidault mundi eftir „öðru tilboði“ um að tveimur kjarnorku- sprengjum yrði beitt gegn herjum Viet Minh við Dien Bien Phu. Höf- undarnir bæta við: „Bidault er ekki í neinum vafa um að hann fékk þessi tilboð“. Þar sem Bidault gerði sér ljóst hversu ömurlegar afleiðingar slík við- brögð gætu haft, ítrekaði hann í staðinn málaleitun Elys hershöfð- ingja um bandarískar loftárásir, án kjarnorkuvopna, við Dien Bien Phu. Dulles og Radford aðmíráll, yfir- maður herráðsins, mæltu þá með því að flugsveitir landhers og flota skær- ust þegar í leikinn. Aður en endanleg ákvörðun væri tekin samdi Matthews B. Ridgway, æðsti maður landhers- ins, nákvæma herfræðilega áætlun um það hvað í henni fælist. Skýrsla hans til forsetans sannaði að bein íhlutun gæti ekki orðið „árangursrík“ nema lagt væri í meiriháttar styrjöld með stórfelldum tilkostnaði. í endur- minningum sínum komst Ridgway hershöfðingi svo að orði: í Kóreu hafði okkur lærzt að lofther og floti hrökkva ekki til þess að vinna sigur í styrjöld og að sigur verður ekki heldur unn- inn með ónógum landher. Mér var það óskiljanlegt að við hefðum nú þegar gleymt þeirrisáru reynslu — að við ætluðum að fara að endurtaka sömu hörmulegu vill- una. Sú villa var ekki endurtekin, Guði sé lof ... Fallið var frá hug- myndinni um íhlutun, og það er 324
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.