Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 39

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 39
Biblíugagnrýni, lineykslanir og pcrsónudýrkun nema ef vera skyldi sú, að einu sinni um vorið eða sumarið, þegar við spjölluðum saman tveir einir, þá vindur hann sér nllt í einu að mér og spyr mig beint, hvort ég vilji ekki gefa mig Jesú. Eg held ég hafi ekki svarað neinu, en hann tekið þögn mína sem synjun og látið málið nið- ur falla, svo sem kurteisum manni sómdi. Að gefa sig Jesú var allt of órætt hugtak til þess að ég gæti verið með á nótunum. Ef til vill hef ég stjórnazt af einhverri tilfinningu fyr- ir því, að maður væri kominn út á nokkuð vafasamar brautir, ef maður færi að gefa sig á vald einhverju ó- ræðu hugtaki, þar sem skaparinn hafði gætt mann skynsemi til að hugsa og skilja. En bíblíugagnrýnin hans Arthúrs Gooks var ekki upp á marga fiska í samanburði við bíbliugagnrýni Há- skólans. Þar var fræðimennska, sem sagði sex. Nú voru manni sýndir at- burðir biblíunnar og sagnhetjur í þeirra eigin umhverfi í tíma og rúmi, menningarþróunar og atvinnuhátta. Rakið var samband trúarskoðana Gyðinga við forsögu þeirra og at- vinnuþróun, baráttu eldri trúarhug- mynda gegn nýjum hugmyndum og nýjum guðum, sem sigldu inn í þjóðlífið í kjölfar nýrra atvinnu- hátta og fyrir byri vaxandi kynna við þjóðir umheimsins í þjóðbrautinni fyrir botni Miðjarðarhafs. Biblían moraði af mannlegu lífi og mannleg- um örlögum, og það var ekki laust við, að við íslendingar fyndum þar drætti úr okkar eigin sögu. Á þessum árum vorum við að vinna síðustu sigrana í baráttu okkar fyrir viður- kenningu þess, að við værum sjálf- stæð og fullvalda þjóð. Það var ekki trútt um, að okkur gæti fundizt lítið til um þá harðneskju, sem við höfð- um verið beittir öldum saman, þegar við settum okkur fyrir sjónir herleið- ingu ísraelsmanna til fjarlægra landa. Það hafði aðeins einu sinni borizt í tal, að íslendingar væru allir fluttir til józku heiðanna til að bjarga lífi þeirra. Gyðingar áttu sína Fjölnismenn, sem vöktu þjóð sína, þegar verst horfði, og hvöttu hana til andstöðu gegn erlendum áhrifum og hvers konar kúgun. Andríki júðsku spámannanna náði enn til hjartnanna og það á fjarlægum hjara veraldar, því að þeir töluðu af anda, sem ofar er tíma og rúmi og óháður kynþátlum og trúardeildum. Svo áttu Gyðingar einnig sína Jóna Sigurðs- syni, sem sögðu erlendu drottnunar- valdi stríð á hendur og helguðu líf sitt því að samansafna þjóð sinni undir fána frelsisbaráttunnar. En þar skildi, að Danir tóku aldrei okk- ar Jón Sigurðsson til krossfestingar eða annars þvílíks dauðdaga og ekki lieldur þá, sem tóku upp fánann eftir hans dag. En kúgarar ísraelsmanna, innlendir jafnt sem erlendir, tóku umsvifalaust af lífi hvern þann, sem 341
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.