Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1964, Page 61
11 álj máninn IV Nýorðin átta ára hafði ég lært að veðsetja. Eg vissi vel að við hefðum ekk- ert að borða ef við gerðum það ekki. Mamma sendi mig aldrei fyrr en í öll önnur skjól var fokið. Avallt þegar hún sendi mig með lítinn böggul, vissi ég að ekki var eftir spónfylli í pottinum. Potturinn okkar var stundum galtómur eins og snyrtileg ekkjufrú. Einn dag bar ég spegilinn á brott. Þótt mamma notaði hann daglega virtist hann samt vera eini hluturinn, sem við gætum séð af. Það var vor, og bómullarstoppaður klæðnaður okkar hvarf í veðlána- húðina um leið og við afklæddumst honum. Ég tók niður spegilinn, ég vissi að ég yrði að fara varlega, varlega, en ganga samt hratt; þessari búð var alltaf lokað snemma. Ég óttaðist stóru, rauðu hurðina, var hrædd við hátt og langt búðarborðið. Hjartað fór að slá hraðara um leið og ég kom auga á dyrnar. Ég varð að fara inn, jafnvel þótt ég yrði að skríða upp þessi háu þrep. Ég þurfti á öllum niínum mætti að halda til að rétta fram hlutinn og kalla: veðsetja, veðsetja. Ég tæki við peningunum og kvittuninni, gætti henn- ar innvirðulega og flýtti mér heim af Jjví ég vissi mömmu órólega. En í þetta skipti vildu þeir ekki líta við speglinum, sögðu mér að bæta við „fyrsta merki“. Ég vissi hvað „fyrsta merki“ þýddi. Ég hljóp heim eins hratt og fæturnir toguðu. Mamma grét hún kom ekki auga á neitt annað til að veð- setja. Ég var vel kunnug í litla herberginu okkar, og mér fannst alltaf að margt væri þar inni. Nú hjálpaði ég mömmu að finna einhver föt, sem mætti veðsetja, og þá fyrst varð mér ljóst að við áttum svo lítið, svo lítið. Mamma sendi mig ekki aftur til veðlánarabúðarinnar. En þegar ég spurði hana, hvað við ættum að borða, rétti hún grátandi fram silfruðu hárnálina sína — þetta var eini silfurmunurinn okkar. Ég hafði séð hana taka hana niður nokkrum sinnum en aldrei fá af sér að afhenda mér hana. Amma hafði gefið henni þetta höfuðdjásn á brúðkaupsdegi hennar. Nú rétti hún mér hana og sagði mér að veðsetja hana með speglinum. Ég flýtti mér eins og ég mátti til veð- lánarabúðarinnar, en þessar skelfilegu dyr voru þegar harðlæstar. Ég settist á þröskuldinn haldandi um brúðargjöfina. Ég þorði ekki að gráta hástöfum, en horfði upp í himininn, ó, tunglsgeislinn skein aftur gegnum tárin. Ég grét mjög Iengi, mamma kom út úr skugganum og dró að sér hönd mína. Hve hönd hennar var heit, ég gleymdi allri annæðunni, meira að segja hungrinu. Meðan heit hönd mömmu leiddi mig var ég ánægð. Ég sagði með grátstaf í röddinni: „Mamma, förum heim að sofa, ég get komið aftur á morgun.“ Manima svaraði engu. Við gengum um hríð. Ég sagði: „Mamma, sjáðu hálf- 363
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.