Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Page 7
Flett blöðum jarðsögunnar
jafnt. Með því að mæla hlutfall þessara efna í berginu er unnt að reikna út
aldur þess bergs. Einnig er hægt að bera saman segulstefnu í gosbergi, eink-
um í hraunum, um víða veröld. Þegar hraunkvikan storknar segulmagnast
storkan í samræmi við segulsvið eins og það er á hverjum tíma. Skautaskipti
hafa orðið með alllöngu millibili. Þannig eru 700.000 ár siðan norðurendi
segulnálarinnar tók að vísa eins og hann gerir í dag. Á tímabilinu 700.000
til 2.400.000 ár aftur í timann vísaði norðurendi nálarinnar suður. Hér á
landi hafa þeir Trausti Einarsson og Þorbjörn Sigurgeirsson unnið allmikið
að slikum mælingum í bergi. En nú hin síðari ár hafa bandariskir jarð- og
jarðeðlisfræðingar búið til tímatal þar sem segulskautaskiptin hafa verið ald-
ursákvörðuð með kalíum-argon-aðferðinni. Við þetta tímatal höfum við
stuðzt.
Þetla er nú farið að verða allvísindalegt. Eigum við ekki að snúa okkur að
fíeringssundi? Hvernig er þar umhorfs?
Langa lengi munu jarðfræðingar, líffræðingar, fornleifafræðingar og aðr-
ir hafa velt því fyrir sér, hvenær sjór fór fyrst í gegnum Beringssund og sleit
gamla heiminn úr tengslum við þann nýja svo að lífverur tóku að þróast
sjálfstætt í hvorum heimshluta, Suðurameríka hafði þó á löngum tímabilum
verið aðskilin frá Norðurameríku. Sá sem einna mest hefur rannsakað þetta
er einmitt David M. Hopkins og félagar hans við bandarísku jarðfræðistofn-
unina. Þeir veittu því athygli að mikill munur er á skelja- og kuðungateg-
undum í sjávarseti sunnan Beringssunds og norðan. Sunnan sundsins er í
jarðlögum eingöngu um „kyrrahafstegundir“ að ræða en norðan „atlants-
hafstegundir“. Norðan sundsins verður síðan skyndileg breyting er „kyrra-
hafstegundir" verða ríkjandi meðal skeldýranna. Þetta bendir til opnunar
Beringssunds. Nú hagar því þannig til norðan til í Alaska að hraunlög er
ekki þar að finna í setlögunum, svo að raunverulegur aldur þessa atburðar
verður ekki fundinn þar, en steingervingarnir benda til að Beringssund hafi
orðið sævarsund nálægt mótum tertier og jökultíma. Rannsóknir á Pribilofs-
eyjum sýna að þetta hefur gerzt fyrir meira en 2.5 miljónum ára, en í elzta
sjávarseti þar er farið að gæta „atlantshafstegunda“. Eyjarnar eru alllangt
sunnan Beringssunds.
Ég man ekki betur en þú segðir mér einu sinni að jarðsagan stœði skráð
á Tjörnesi. Nú hafa líklega rannsóknirnar þar komið ykkur að góðu haldi.
Og hvað stendur ritað í hinni merku bók á Tjörnesi?
Af eldri rannsóknum, einkum Guðmundar G. Bárðarsonar, var okkur kunn-
245