Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Blaðsíða 114
Björn Þorsteinsson
Hlutui* Kclta í landnámi f slands
Upphaf íslenzkra visinda
I síðasta hefti þessa rits birtist gagn-
merk ritgerð um írska guðsmenn,
Papa, sem hér sátu endur fyrir löngu
og mældu ljósmagn miðnætursólar
með lúsatínslu úr skyrtum sinum.
Það var upphaf vísindaiðkana á voru
landi. Höfundurinn, Halldór Laxness,
er mikill miðaldafræðingur, enda
fóstraður af bílífum Pöpum að
nokkru leyti; meiri medievalista en
H. K. L. höfum við fáa eignazt. Við
státum af menningarafrekum frá
miðöldum, en gerum okkur of lítið
far um að nema evrópsk miðalda-
fræði, sem eru þó grundvöllur ís-
lenzkra fornbókmennta. Halldór seg-
ist hafa forvitnazt fyrir nokkrum ár-
um af bókum um mannaferðir á ís-
landi fyrir landnámslíð. Þessar for-
vitnisferðir fór hann, þegar hann
vann að Gerplu. Þá rak á fjörur hans
þann Papa-fróðleik, sem hann miðlar
okkur í ritsmíðinni síðustu. Prófess-
or Turville-Petre í Oxford, einhver
sannfróðasti maður, sem nú er uppi,
um brezkar og norrænar miðaldir,
tjáði mér eitt sinn, að hann dáðist
mest að höfundi Gerplu fyrir það,
hve hann hefði rannsakað rækilega
sögusvið sitt á Bretlandseyjum og
kannað mikið magn heimilda. Hall-
dór er mikill vísindamaður í fornri
og góðri merkingu þess orðs á vora
tungu. Hann sér vítt og of vítt um
veröld hverja, en mér og mínum lík-
um, sem bjástrum við fræði, kippir
oft í kyn til þeirra fróðleiksmanna,
sem hér sátu forðum og leituðu að
peticulis. Við getum ekki leyft okk-
ur þann munað að sniðganga smælk-
ið, sem við þreifum uppi með ærinni
fyrirhöfn í hálfrökkri horfinna tíma.
Það er óneitanlega hampaminnst að
vera ekki að barna söguna fyrir Ara
fróða og Þjóðreki munki, sem segir
seint á 12. öld, að Norðmenn hafi
fyrstir tekið sér bólfestu á íslandi,
„nema ef tíunda ber, að nokkrir menn
mjög fáir, frá írlandi, eru taldir hafa
búið þar áður, að þvi er ráðið verð-
ur af sérstökum bókum og öðrum
hlutum, sem þar hafa fundizt eftir
þá.“ Þjóðrekur styðst við íslenzkar
heimildir, ályktar sennilega út frá
riti Ara, svo að frásögn hans hefur
ekki mikið sjálfstætt gildi um þetta
efni. Það er þó augljóst mál, að því
hefur verið trúað á íslandi á 12. öld,
að byggð íra hér úti hafi verið fá-
352