Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Blaðsíða 138
Mál og menning
Hið nýja bindi Mannkynssögunnar, sem ætlunin var að yrði ein aí félagsbókum Máls og
menningar þetta ár, varð því miður ekki til nógu snemma frá höfundarins hendi til þess
að' það gæti komið út fyrir áramót. Stjórn Máls og menningar valdi því þann kost að
taka til útgáfu á þessu ári aðra bók, sem annars var ráðgert að yrði félagsbók árið 1966,
Dœgradvöl eftir Benedikt Gröndal. Þar eð undirbúningi útgáfunnar var skammt komið
og prentun gat af þeim sökum ekki hafizt fyrr en í haust, er bókin seint á ferðinni, og
kemst ekki út fyrr en rétt fyrir jól. Dœgradvöl er eins og kunnugt er eitt af merkustu
rituin íslenzkra bókmennta í óbundnu máli frá nítjándu öld; hin endanlega gerð hennar
hefur aðeins verið gefin út einu sinni áður, í Ritsafni Benedikts Gröndals, sem nú er
uppselt fyrir nokkru. Æskilegt er að svo sérstætt rit sem Dœgradvöl sé jafnan til í hand-
liægri útgáfu, og hefur Mál og menning viljað bæta úr þeirri vöntun sem fyrir var að
þessu leyti, um leið og félagið stuðlar að því að fleiri en áður eigi kost á að lesa og eiga
þetta skemmtilega og merkilega rit. Utgáfu bókarinnar eftir eiginhandarriti Gröndals
hefur annazt ungur fræðimaður, Ingvar Stefánsson cand. mag., og hefur hann samið við
liana skýringar og formála.
Fimmta hefti myndlistarílokks Máls og menningar er í prentun, en kemst varla til
landsins fyrr en í marz eða apríl. Það mun þó teljast til félagshóka þessa árs.
Um Mannkynssöguna er það að segja að byrjað verður að setja næsta bindi strax um
áramótin, og ætti það þá að geta komið út fyrir vorið ef allt gengur þolanlega.
26. árgangi Tímaritsins lýkur með þessu hefti eins og lesendur sjá. Var sá kostur valinn
að liafa heftið tvöfalt til að koma aftur reglu á útgáfuna sem hljóp úr réttum skorðum
á árinu 1964.
37G