Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Blaðsíða 109

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Blaðsíða 109
skammsýnna alhæfinga. Hinn raun- verulegi máttur skæruherja er ekki fólginn í hæfileikum þeirra til að breyta sjálfum sér í reglulega heri sem geti sigrað aðra reglulega heri, heldur er hann fólginn í pólitískum styrkleika þeirra. Endanlegt fráhvarf alþýðu getur leitt til hruns stjórnar- valda. Oft er undanfari þess almennt liðhlaup stjórnarhersveita yfir í skæruherinn. Mikilvægur hernaðar- sigur skæruliðanna afhjúpar þá hrun- ið. Uppreisnarher Fidels Castrós tók ekki Havana; þegar hann hafði sann- að að hann gæti ekki aðeins haldið Sierra Maestra, heldur einnig hertek- ið Santiago, þá var úti um stjórnar- kerfi Batista. Erlendar hernámssveitir eru senni- lega ekki eins uppnæmar og duglaus- ar. Samt er líka hægt að sannfæra þær um að þær heyi stríð sem þær geti ekki unnið, og að þær verði að borga hin stopulu ítök sín óhóflega dýru verði. Sú ákvörðun að stöðva þennan dýra leik er sjálfsagt auð- mýkjandi, og alltaf má finna gildar ástæður til að skjóta henni á frest, af því að það er sjaldgæft að hinn er- lendi her bíði úrslitaósigur, þó ekki sé nema í takmörkuðum hernaðarað- gerðum eins og í Dien Bien Phu. Bandaríkjamenn eru enn í Saigon og drekka þar bourbonið sitt í friði að því er virðist, nema hvað stundum springur ein og ein sprengja í kaffi- húsi. Sveitir þeirra virðast geta ferð- AfljrœSi skœruhernaSar og Víetnam azt um landið eins og þeim sýnist, og þeir missa ekki miklu fleiri menn en í bílslysum heimafyrir. Flugvélar þeirra varpa sprengjum þar sem þeim þóknast, og enn er einhver til sem hægt er að kalla forsætisráðherra „frjáls“ Víetnams, þó erfitt sé að sjá fyrir hver hann verður eftir nokkra daga. Þannig er alltaf hægt að halda því fram að svolítið meira átak muni ríða baggamuninn: fleiri hermenn, fleiri sprengj ur, meiri fjöldamorð og pynd- ingar, fleiri sveitir „félagslegra ráðu- nauta“. Saga Alsírstríðsins er forspá um Víetnam að þessu leyti. Þegar því lauk var hálf milljón hermanna í Al- sír (miðað við níu milljónir alsírskra íbúa gerir það einn hermann á móti átján íbúum, þó ekki sé tekið tillit til landnemanna sem voru á bandi Frakka), og herinn heimtaði enn meira, þar á meðal endalok franska lýðveldisins. í slíkum kringumstæðum er erfitt að skera niður tapið, en þar kann að koma að ekki er vit í neinu öðru. Sumar ríkisstj órnir eru fljótari til en aðrar. Bretar hörfuðu úr írlandi og fsrael all-löngu áður en þeim var orð- ið þar óvært. Frakkar þráuðust við í Víetnam í níu ár og í Alsír í sjö ár, en fóru að lokum. Og hvers er völ annars? Staðbundnar skæruaðgerðir fyrri tíma var hægt að einangra og halda í skefjum með ýmsum tiltölu- lega ódýrum brögðum, sem höfðu lit- 347
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.