Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Side 16

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Side 16
Timarit Máls og menningar færi, þó að hann væri ekki mikill kunnáttumaður á því sviði. En eftir að hann fluttist til höfuðborgarinnar var ekkert tóm til slíks. Fólki hans fannst líka vafasöm prýði að slíkum forngrip í nýju húsi. Hann lét því orgelið fara, þó að ekki væri það alveg sársaukalaust. — Þá kom röðin að heimilistækj- unum. Með nokkru millibili bættist í búið ryksuga, kæliskápur, þvottavél og hrærivél. Með tímanum eignaðist fj ölskyldan vistlegt og þægiiegt heimili. Því miður auðnaðist konunni ekki að njóta þess nema fá ár. Hún dó, er hún hafði átt heima í höfuðborginni tæpan hálfan annan áratug. Þó að ómegðin væri ekki mikil, aðeins þrjú börn, þyngdist hún til mikilla muna eftir því sem börnin stálpuðust, öfugt við það, sem áður gerðist. Börn- in gengu öll í skóla fram undir tvítugt, og þau þurftu mikið til sín. Hjónin voru samhent um að gera eins vel við þau og efni leyfðu framast. Þau fengu ekki aðeins fjölbreytt og kjarngott fæði, vistleg herbergi og góð föt, heldur einnig nokkra vasapeninga fyrir gosdrykkj um, aðgöngumiðum að kvikmynd- um og einnig fyrir sígarettum síðar meir. Og þegar þau voru orðin svo stálp- uð, að þau gátu farið að vinna, fengu þau að ráðstafa tekjum sínum sjálf. Oft höfðu þau hjónin minnzt á það sín á milli glöð og hreykin, að ólíku væri saman að jafna kjörunum, sem börnin þeirra ólust upp við, og þeim, sem þau sjálf höfðu átt við að búa á uppvaxtarárunum. Þau höfðu einnig verið sam- hent um að forðast að banna þeim og vanda um við þau, svo sem ríkjandi uppeldiskenningar mæltu fyrir um. Þau litu jafnvel á það sein vott um mennt- un og andlega döngun, þegar börnin fóru að segja þeim sjálfum til, foreldr- unum, oft í nokkuð höstum tón. Enda þótt Hreggviður ætti því láni að fagna að sjá iðju sína bera ávöxt í fallegu og farsælu heimili, gat hann ekki að því gert, að honum ofbauð, hvað hann þurfti á sig að leggja, enda stundum beinlínis að þrotum kominn. Hann hafði að vísu vanizt löngum vinnudegi á uppvaxtarárunum, en sveitavinnan var einhvern veginn lífrænni heldur en flest þau störf, sem hann átti völ á í höfuðstaðnum. Honum fannst hreint og beint eitthvað niðurlægjandi við það að vinna störf, sem ekki stóðu í neinu sambandi við áhugamál hans. Það að selja vinnuafl sitt var að selja eitthvað af sjálfum sér, en að vinna slíka launa- vinnu myrkranna á milli dag hvern, sunnudagana líka, það var að selja sjálf- an sig í þrældóm í bókstaflegum skilningi. Stundum gat jafnvel hvarflað að lionum sú spurning, hvort öll þessi þægindi, sem hann var að strita fyrir og flest höfðu verið óþekkt í hans ungdæmi, væru ekki, þegar öllu væri á botninn hvolft, mesti óþarfi. En slikum hugsunum bægði hann jafnharðan frá sér eins og hverri annarri ólund þreytts manns. Einnig minnti hann sjálfan sig 254
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.