Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Page 49
Kalt stríð sér eftir rúninginn, en Hreggviður sat uppi og naut unihverfisins. Allt sem fyrir augað bar, var honum gamalkunnugt, og hann sá það eins og í einhverj- um mildum bláma, þó að ekki væri fjarlægðunum fyrir að fara. Hvað eftir annað varð honum litið upp eftir brekkunni, þar sem hann lá, því að hann þóttist aldrei hafa séð fegurri blágresisbreiður um sína daga, enda þótt hann hefði reyndar séð þessa sömu brekku skarta sínu fegursta á hverju vori öll uppvaxtarárin. Þegar hann horfði á hlómin næst sér, kom honum allt í einu í hug, að þessi litlu og ofurfíngerðu blágresisblóm báru sama lit og hamra- fjöllin, þegar bjart var yfir. Og hann fór að hugleiða, hversu þessi undarlegi blendingur af bláu og rauðu hafði öðruvísi áhrif en allir aðrir litir, hve fj ólublái liturinn hefur undraverðan seiðmátt og hversu hann laðar til draum- lyndis. Mundi hann ekki eiga sinn þátt í því að móta lyndiseinkunn þess fólks, sem landið byggði? En áður en varði var hugur hans kominn út í aðra sálma. „Eg komst lítið að heima við borðið áðan,“ sagði hann fyrst orða, „enda kærði ég mig ekkert um að grípa fram í fyrir þér, því að útlistun þín var mjög umhugsunarverð. En því er ekki að leyna, að sitthvað hef ég við sjónar- mið þitt að athuga. Og þar sem ég hef, eins og þú sagðir, gerzt virkur þátt- takandi í þeirri framvindu, sem þú virðist finna flest til foráttu, þá ber mér raunar skylda til að snúast til varna.“ „Lát heyra, bróðir,“ anzaði Þráinn, þar sem hann lá á bakið við hliðina á honum og opnaði ekki einu sinni augun. Eftir stutta þögn tók Hreggviður til máls: „Bróðir, segir þú. Það má til sanns vegar færa. Við erum upp runnir á sömu slóðum og við sömu skilyrði, vorum nánir kunningjar, störfuðum í sama ungmennafélagi, áttum svipaðar framtiðarvonir. Þessi samfylgd á æskuár- unum rifjast nú upp fyrir mér, þegar við hittumst aftur, aldraðir menn, og berum saman hinar óliku bækur okkar. Þó að minningarnar séu skýrar, finn ég jafnframt betur en nokkru sinni fyrr, hversu langt er um liðið, síðan við slitum barnsskónum, hve ótrúlega mikil saga hefur gerzt um okkar daga. Og það er eðlilegt að skoða það, sem orðið er, í ljósi þess, sem ætlað var. Á uppvaxtarárum okkar gekk bjartsýnis- og hrifningaralda yfir landið, svo að líklega hafa Islendingar ekki í annan tíma verið trúmeiri á framtíð sína. Þessi alda náði inn til innstu dala, þar á meðal til okkar. Við munuin óefað báðir vel eftir ungmennafélagsfundunum, sem við sótt- um á veturna, oftast fótgangandi langa leið, iðulega í þungu færi og skamm- degismyrkri. Þeir voru haldnir á víxl á þeim bæjunmn, sem rýmst húsakynni 287
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.