Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Side 50

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Side 50
Tímarit Máls og menningar höfðu, venjulega í framhúsi. En stundum voru þeir líka haldnir í venjulegri baðstofu. Fólk raðaði sér þá á rúmin undir súðinni, og sumir sátu jafnvel á gólfinu. Yfir miðju gólfi hékk olíulampi ekki sérlega birtumikill. Og þarna hófst svo málfundur. Kannski reyndi unga fólkið að lnjóta til mergjar ein- hver vísdómsorð úr Hávamálum eða biflíunni, því að mannvit og siðgæði var í þess augum æðstu verðmæti. Þá voru ekki síður vinsæl umræðuefni, er vörðuðu framfarir í atvinnulífi: samgöngubætur, bættur húsakostur, hagnýt- ing á tækni annarra þjóða, fegrun og græðsla landsins. Oft voru lesin og rædd kvæði nítjándualdarskálda, einkum þó aldamótaljóðin. Framtíðarsýn og stórhugur þessara kvæða og sérstaklega kannski hinn hlýi tónn þeirra, yljaði þessum fátæku unglingum, gaf þeim trú á lífið og rétti þá úr kút ein- angrunar og stöðnunar. Fundinum lauk þá líka oft með því, að sungin voru ættjarðarkvæði. Að síðustu var kannski tekin upp harmónika og reynt að stiga fáein dansspor. Svo var aftur haldið út í náttmyrkrið, stigið á skiði eða hlaupið á hjarni. Eg man, að oft komum við ekki heim fyrr en í morguns- árið.“ Hreggviður gerði hlé á ræðu sinni til þess að skipa haganlega niður því, sem hann vildi segja, og líka meðfram til þess að gefa fornvini sínum færi á að taka undir æskuminningarnar af þakklátum huga. En Þráinn lá ennþá með Iokuð augun og bærði ekki á sér, svo að Hreggviður hélt áfrain: „Já, það er langt um liðið síðan og margt breytt, en samt eru þessar minn- ingar furðu áleitnar, sérstaklega þegar maður kemur í átthagana aftur eftir öll þessi ár. í sannleika sagt hef ég til þessa dags búið að þeim áhrifum, sem ég varð fyrir á uppvaxtarárunum, sérstaklega í ungmennafélagshreyfingunni. Þau gáfu mér það veganesti, sem mér finnst hafa orðið mér heilladrýgst. Og hvert var það þá í einstökum atriðum? Það var trú á batnandi heim, trú á manninn, góðleik hans og hæfileika til að taka framförum. Það var trú á milt fólk, þessa litlu þjóð, þá innan við hundrað þúsund sálir, sem búin var að þrauka í þúsund úr hér ú afskekktu eylandi norður undir heimskauts- baug án þess að ná nokkurn tíma lraustri efnahagslegri fótfestu. Trú á það, að þetta fólk ælti eigi að siður til að bera hæfileika og atorku til jafns við aðrar þjóðir fjölmennari og ríkari að veraldargæðum. Það er trú á landið, sem við byggjum, skóglaust, uppblásið eldfjallaland, sem annarra þjóða menn telja á mörkum eða jafnvel utan marka hins byggi- lega heims. Trú á það, að þetta land eigi eftir að gróa upp aftur fyrir atorku þjóðarinnar, verða blómlegt og gjöfult eins og á landnámsöld, engu lakara heimkynni dugandi íbúa en önnur lönd. 288
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.