Tímarit Máls og menningar - 01.12.1965, Blaðsíða 137
Erlend tímarit
né börn_____aí því leiðir að þeirn finnst
])eir vera að miklu leyti utangarðs í þjóð-
félaginu, og þeim fjölgar óðum sem kæra
sig ekki um að vera þjóðfélagsþegnar. í
stöðu sinni, yzt í þjóðfélagshringnum, geta
þeir haldið á lofti mannlegum verðmætum
sem þeir vita að verða afskræmd þegar þeir
ganga inn í samvizkuliðuga, hagsýna vcröld
hinna fullorðnu."
En þessi umgetna „samvizkuliðuga, hag-
sýna veröld hinna fullorðnu" ásakar hina
ungu menn íyrir að vera með gagnrýni á
þjóðfélaginu yfirleitt, auk þess sem þeir
séu óánægðir með háskólann.
Jerome David Salinger lætur í skáldsögu
sinni, Catcher in the Rye, sem kom út 1951,
Holden Caulfield sætta sig við það sem ver-
öld hinna fullorðnu licfur upp á að bjóða:
glæpi, lýgi, kák. Sú bók var árum saman
biblía háskólaæskunnar.
Holden Caulfield, 16 ára, sætti sig við,
Mario Savio, 21 árs, hóf baráttu. Hann
varð málsvari nokkurra þúsunda stúdenta
og neyddi háskólayfirvöldin til undanláts.
Háskóli Kaliforníu er stærsta háskólafyr-
irtæki heims: 80 þúsund stúdentar í níu
háskólabæjum, árleg útgjöld hans eru um
500 þúsund dollarar. Forseti hans, Carl
Kerr, hefur hæst laun af starfsmönnum rík-
isins fyrir það að reka þetta risafyrirtæki
og láta það þróast. Þetta er háskóli fram-
tíðarinnar, „þekkingarverksmiðja" eins og
Kerr hvað eftir annað hefur tekið fram.
Það er ekki Uni-versity heldur Multi-ver-
sity.
„Ifáskólinn og iðjuverin," þannig tók
Kerr til orða í fyrirlestri sem hann hélt í
Harvard, „líkjast æ meir livort öðru. Að
því leyti sem háskólinn fer meira inn á svið
starfsins verða prófessorarnir, að minnsta
kosti hvað snertir náttúrufræði og þjóðfé-
lagsfræði, æ líkari iðjuhöldum". Það er dá-
lítið einkennilegt og í því felst visst skop,
að Kerr skyldi við það tækifæri spá því að
stúdentarnir mundu taka þessum breyting-
um með óspektum, að þeim mundi finnast
þeir vera „útskryppisöreigar" og fórnardýr
vélamcnningarinnar.
Spádómleg skilgreining Kerrs rættisl:
stúdentunum fannst þeir vera eins og tala,
sem IBM-vél hafði reiknað út, vanræktir af
prófessorunum, aðskotahlutir í hreiðri and-
ans, þaðan sem þeir voru brottreknir eftir
hraðmenntun. Þetta er líka ein orsök þess
að þeir utan háskólans varpa sér af ákefð
út í „hið eiginlega líf“: í baráttu fyrir borg-
araréttindum, í rökræður um Vietnam.
Berkeley stendur í broddi íylkingar stúd-
entasamtakanna í baráttunni fyrir friði.
Nefnd óvilhallra manna, sem kosin var
til að rannsaka orsakir uppreisnarinnar í
Berkeley, komst að þeirri niðurstöðu, að
háskóli, þar sem stúdentamir hefðu eitt-
hvert innsæi, hlyti að verða fyrir gagnrýni
þeirra, að slíkur háskóli hlyti að reyna um
of á þolinmæði foreldra, skattgreiðenda og
skólayfirvalda, og að stúdentar í dag væru
frábrugðnir þeim sem orðnir væru fimratug-
ir, að því leyti, að þeir tækju virkari þátt í
því þjóðfélagi sem þeir væru að búa sig
undir að lifa í.
Þessir tilvonandi þjóðfélagsþegnar, með
hugsjónir sínar, mótmæli og kröfugöngur,
eru teknir alvarlega af þeim sem þegar
gegna stöðum í þjóðfélaginu. Annars hefðu
ekki verið sendir háttsettir embættismenn
til háskólanna til að kynna sér orsakir og
framferði í þessum mótmælaaðgerðum, svo
sem þeir McGeorge Bundy, sérlegur ráðu-
nautur Johnsons forseta, Humphrey vara-
forseti og utanríkisráðherrann Dean Rusk.
Og þótt þeir hafi reynt að gera sem minnst
úr óeirðunum og lýst því yfir að stúdent-
amir séu ekki nema örlítið brot af amer-
ísku þjóðinni, sýnir koma þeirra á vett-
vang að þeir álíta óspektiraar annað og
meira en barnabrek.
Halldór Stefánsson íslenzkaSi.
375