Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 31

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 31
frásagnareiningar hafi verið til í íslenskri sagnahefð og mótast af mörgum kynslóðum með munnlegri sagnaskemmtun. En síðan brýtur hann upp þessar frjósömu hugmynd- ir með því að láta þær falla að hugmyndum sínum um ætlun höfundar, ætlun sem stjórnast hafi af klerklegum hugarheimi hins óþekkta skrifara. I Njáls sögu, segir hann, „víkur klerklegur hugarheimur höf- undarins nokkrum sinnum til hliðar á með- an hann fylgir hefðbundnum mynstrum munnlegrar frásagnar. Samt sem áður tekst honum betur en nokkrum fyrri sagnaritara að sameina þessi mynstur og láta þau öll „vinna að sama marki“ sem bæði má nefna kristilegt og fræðandi“ (bls. 163). Einn vandi í sambandi við þessa kenningu er að textarnir, þ. á m. Njáls saga, falla ekki auðveldlega að formgerðarreglum Lönn- roths. Hann harmar það hvemig sögurnar standa gegn því sem hann álítur vera ætlun höfundar á þrettándu öld: Að hve miklu leyti gat hann [höfundur sögunnar] fylgt þessum reglum [um að setja saman úr smærri hefðbundnum einingum, s.s. atriðum] og um leið beygt þær undir heildarbyggingu sína? Mjög fáum sagnariturum tókst þetta; margir þróuðu hefðbundnar frásagnir og fastmótuð atriði eins og það væri markmið í sjálfu sér. Þeir gátu til dæm- is endurtekið tuttugu sinnum að hetj- unum hafi verið vel tekið og þær leystar út með góðum gjöfum í hvert sinn sem þær heimsóttu einhvem — jafnvel þó að heimsóknirnar hafi litla þýðingu og skipti ekki máli fyrir sög- una sem heild. Vani og hefðbundnar væntingar áheyrenda ýttu undir að óþörf smáatriði voru tekin með. Þessi veikleiki fylgir öllum munnlegum bókmenntum og rituðum verkum sem styðjast við munnlega hefð. (bls. 54- 55) Eins og Andersson reiknar Lönnroth með því að frávik frá mynstrinu séu til marks um óþroskaðan höfund. En er hægt að ganga út frá því að sögumaður hafi viljað forðast endurtekningu — rétt eins og bókmennta- smekkur hans hafi verið sá sami og fræði- manna nú á dögum? Endurtekningin er ekki aukaatriði heldur skiptir hún miklu máli fyrir listina að segja sögu. I Njálu verða endurteknar heimsóknir Flosa á bæi í leit að liðsinni til þess að auðvelda áheyrendum að meta hvort hann sé líklegur til að sigra eða bíða ósigur. Söguhöfundur er vísvitandi að draga upp mynd fyrir áheyrendur sína af þeim skyldum sem krafist var eða lagðar voru á menn.28 í þessu skyni notar hann nokkur félagslega skilyrt hugtök eins og „allvel“, „góðar viðtökur“ og með „báðum höndum“. í miðaldatexta eru þetta ákveðn- ar vísbendingar. Lönnroth er mjög góður fræðimaður og í bók hans eru margar mikil- vægar ábendingar. En með því að einbeita sér að ætlun hins óþekkta höfundar skýst honum stundum yfir mikilvæg atriði. Hann afgreiðir áhugaverða áherslu sagnanna á fé- lagslega nákvæmni sem endurtekningar og útúrdúra. Honum skýst yfir að þetta venju- lega einkenni munnlegrar frásagnar er meg- inatriðið í hefðbundinni sögutækni íslend- ingasagna. Carol Clover um bókfestu og samþættingu Sams konar áhersla á ætlun hins óþekkta höfundar liggur að baki í verki Carolar Clover. í bók sinni frá 1982, The Medieval Saga, heldur Clover því fram að þróað frá- sagnarform Islendingasagna geti ekki átt rætur að rekja til innlendrar hefðar. í anda bókfestu leitar Clover að erlendum bókleg- um uppruna og varpar fyrir róða innlendri, munnlegri forsögu. Hún lítur fram hjá lög- um, dómstólum, meðferð deilumála o.s.frv. og heldur formi og inntaki eins aðgreindu TMM 1990:2 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.