Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 34

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 34
nokkrir einstaklings-þættir renna sam- an og mynda brennumanna-þátt sem leysist upp eftir hápunkt sögunnar og fylgir einstaklingunum í ólíkar áttir). Einnig getur efni sem er heilsteypt á einum stað verið margklofið á öðrum. Hallfreðar saga er skýrt dæmi um þetta. Hún er þáttur í Ólafs sögu Tryggvasonarhinni lengstu (skotið inn í níu hlutum) og jafnframt heilsteypt saga eða kafli í Möðruvallabók. Að lokum má líta á sum leiðarminni í ís- lendingasögum sem staðfestingu á fagurfræði samþættingarinnar enda þótt þau séu á engan hátt afmarkaðar sögur. Hér má nefna vopnið Grásíðu sem skilur eftir sig blóðuga slóð í Gísla sögu, hár Hallgerðar og glott Skarp- héðins í Njáls sögu og moturinn í Lax- dæla sögu. Sú óaðskiljanlega heild sem dregin er upp með þessum milli- vísunum (eða samfléttun) hefur verið eitt höfuðatriðið í kenningum um upp- runa og varðveislu fslendingasagna. (bls. 65) Hægt er að lýsa texta á marga vegu og hafa nokkuð til síns máls hverju sinni. Hér snýst málið um það hvort sögumaður og áheyr- endur hans hafi deilt með sér og unnið út frá ákveðinni hugmynd um frásögnina. Með öðrum orðum má réttilega segja að brauð- moli sé samsettur úr frumeindum en höfðu miðaldamenn, sem lögðu sér brauð til munns, skilning á því? Og þurfti bakarinn að vita það? Enda þótt samþætting atburða- rásar sé mjög raunhæft bókmenntahugtak þá verðum við að spyrja okkur hvaða gagn er að jafn víðri skilgreiningu og hér er lögð fram. Peter Hallberg spyr í mjög ítarlegu rannsóknaryfirliti: Er yfirleitt hægt að segja sæmilega langa sögu, munnlega eða skriflega, án þess að nota samþættingu? Lýsing Carolar Clover á fyrirbærinu er sjálf- sagt rétt en ákaflega almenn. Hún ætlar henni þó miklu meira en það með því að fullyrða að samþætting sé dæmi- gerð fyrir ritaða evrópska frásagnarlist á miðöldum. í mínum augum er það nær óhugsandi að íslendingar hafi ekki frá upphafi getað sagt munnlegar, sam- þættar sögur til að gera grein fyrir ættardeilum og margslungnu forspili þeirra. „Slíkt hlýtur að teljast lágmarks boðskiptageta í samfélagi með svo þróað stjórn- og dómskerfi."34 Að baki þátta Clover virðist stundum mega greina gömlu hugmyndina um að rekja þemu í sögum; annars staðar leit að minn- um. Hugmyndir af þessu tagi segja lítið um form og lítið um sögurnar almennt nema hvað þær gera fræðingum kleift að sýna fram á að oft vísi góð saga oftar en einu sinni til margra manna, staða og hluta. Flestir þættimir hjá Clover myndu flokkast undir það sem Anne Heinrichs hefur nefnt „frumstæð form (nöfn, ættartengsl, endur- tekningar)" samfléttunar. Til mótvægis við þetta nefnir Heinrichs annan flokk: flóknari gerðir samfléttunar (tengsl fólks). I þeim flokki er bindiefni sögunnar að finna með öllum sínum þáttum. En sú sögugreining sem til þarf krefst skilnings á því hvernig íslenskt þjóðfélag starfaði í sambandi við ættartengsl, milligöngu og pólitísk tengsl. Hin flóknu form samfléttunar sem Hein- richs bendir á í Islendingasögum, en Clover lítur framhjá, greina sögurnar frá frönskum rómönsum. Anne Heinrichs kemst að þeirri niður- stöðu að „grunnþættir sögustílsins hafi mótast á munnlegu stigi.“36 Clover notar oft verk tveggja fræðimanna frá því um alda- mót til þess að styðja það viðhorf að sam- þætting tíðkist ekki í munnlegri sagna- skemmtun. Annar þeirra er Axel Olrik sem sagði árið 1908 að samþætting í Islendinga- 32 TMM 1990:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.