Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Síða 58

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Síða 58
þeirri ljóðlínu sem er mismunandi. Við gæt- um hugsað okkur, að „þar er Ýmir byggði" hafi orðið til þegar kveðið var fyrir jötna, og „það er ekki var“ hafi komið fram á varir kvæðamannsins, þegar nihilistar hlýddu á. Þar sem goðafræðin var margbreytileg voru ýmsir fleiri valkostir til, og ef vel er að gáð skjóta þeir upp kollinum í þessari sigur- göngu kenninganna: Ár var alda þar er Auðhumla bjó. Hefði þetta nú ekki hljómað afskaplega vel, þegar kveðið var í baulusal? En hvert leiða nú slíkar bollaleggingar? Þær leiða kannske fræðimenn á ráðstefnur, en þær leiða því miður fræðin ekki mikið áfram. Hér verður að minna á eina megin- reglu, sem hollt er að hafa til viðmiðunar á þessum síðustu og verstu moldrykstímum: maður má aldrei láta blindast svo mjög af neinni kenningu að hann sjái ekki það sem liggur í augum uppi. Og þessari reglu ættu menn ekki að gleyma þegar þeir lesa þriðju vísu Völuspár. í henni koma að vísu fyrir formúlur, en þó er varla hægt að benda á nema tvær: „ár var alda“ og orðasambandið „jörð og upphiminn“. Þar sem formúlan „ár var alda“ (eða „ár var“) í öðrum eddukvæð- um gæti verið stæling á á Völuspá, er orða- sambandið „jörð og upphiminn“, sem kem- ur fyrir í norrænum kvæðum, sænskum rúnasteini og í öðrum germönskum málum, eina ótvíræða formúlan sem tryggt er að höfundur Völuspár gat stuðst við. Það er ekki mikið, en þótt þær væru fleiri er eitt fullvíst, eins og þegar hefur verið bent á: í því sem hægt er að kalla improvisasjón detta menn aldrei niður á sömu orðin eða sömu setningaröðina, og því er hér ekki um neinar improvisasjónir að ræða, heldur er það sem Konungsbók og Snorra-Edda hafa að geyma sama vísan, þótt á einum stað sé mikilvægur textamunur. Þessa vísu hafa menn kunnað utanað, enda sýnir vitnis- burður Hauksbókar að skrásetjari gat haft hana orðrétt eins og í Konungsbók, þótt hann hefði að sumu leyti aðra útgáfu af kvæðinu í heild. Það getur því engin kenn- ing tekið út af dagskrá þá spurningu hver sé upphaflegur texti þessarar vísu, og aðrar spumingar sem af henni leiða. Nú er vitanlega ekki loku fyrir það skotið, að í „upphaflegum texta“ kvæðis hafi verið einhver textaafbrigði, enda kemur slíkt fyr- ir í skáldskap „ritmenningarþjóða“, eins og sjá má af dæmi þeirra höfunda sem birta eða flytja verk sín í mismunandi gerðum. Það má því segja að þrennt komi til greina: 1) að textaafbrigðið hafi fylgt þriðju vísu Völuspár frá byrjun, 2) að texti Konungs- bókar eddukvæðanna af annarri ljóðlínunni sé réttari, 3) að texti Snorra-Eddu sé réttari. Til að varpa ljósi á þetta, er að mínum dómi aðeins ein leið til, og hún er sú að skilgreina hugsunina og þráðinn í vísunni og athuga um leið hvernig gerðimar tvær af annarri ljóðlínunni falla við hvort tveggja. Við getum byrjað á texta Snorra-Eddu, enda virðist sú uppskrift eldri. I vísunni eins og hún er þar er hugsunin ákaflega skýr. Byrjað er á því að setja fram ákveðna heim- spekihugmynd í tveimur fyrstu ljóðlínun- um: í upphafi var ekkert. Ár var alda það er ekki var. í síðustu sex ljóðlínunum er þessi hugmynd svo skýrð nánar með svipaðri aðferð og hin svokallaða „neikvæða guðfræði“ beitir, þegar reyna á að útskýra eitthvað sem hún telur yfirskilvitlegt: neindinni (tilveruleys- inu) er lýst með því að telja upp það sem ekki var til. Þegar vísan er lesin í þessari gerð, er það mjög sláandi hvemig neitanim- ar vísa aftur til orðsins „ekki“ sem sterk áhersla hvílir á, og mynda þannig skýran þráð þaðan gegnum ljóðlínurnar sex. í þess- 56 TMM 1990:2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.