Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 81
farið að bera á gagnrýni frá menntamönn- um og boðberum nýrra tíma og viðhorfa í ljóðlist. Og hið opinbera dánardægur er ekki langt undan og þarna er, eins og áður sagði, ekki um að ræða hægt andlát, held- ur morð. Það er ungt og framsækið skáld, Jónas Hallgrímsson, sem stígur fram á ritvöllinn og vegur að rímnahefðinni. A lymskulegan hátt segir hann í bréfi til kunningja síns um svipað leyti: „Ég er ekki skáld, eins og þú veist“ — en auð- vitað var hann skáld eins og öllum ís- lendingum mun nú vera ljóst, og hér er því mjög greinilega um hagsmunaárekstur að ræða milli hans og rímnaskálda. Þetta miðaldra ungskáld í dulargervi krítíkers- ins ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í þessum ritdómi. Það er sjálfur konungur rímnanna, Sigurður Breiðfjörð, sem er tekinn fyrir, og spjótum beint að Rímum hans af Tristani og Indíönu, sem Jónas ber þó aðra fyrir að séu með því betra sem á boðstólum sé af þessu tagi, en þá skoðun notar hann svo sem tilefni til að ráðast á íslenskan rímnakveðskap í heild, enda hefst dómurinn svona: Eins og rímur (á íslandi) eru kveðnar, og hafa verið kveðnar allt að þessu, þá eru þær flestallar þjóðinni til minnk- unar — það er ekki til neins að leyna því — og þar á ofan koma þær tölu- verðu illu til leiðar: eyða og spilla til- finningunni á því, sem fagurt er og skáldlegt og sómir sér vel í góðum kveðskap, og taka sér til þjónustu „gáf- ur“ og krafta margra manna, er hefðu getað gert eitthvað þarfara — ort eitt- hvað skárra, eða þá að minnsta kosti prjónað meinlausan duggarasokk, meðan þeir voru að „gullinkamba" og „fimbulfamba" til ævarandi spotts og aðhláturs um alla veröldina. Ekki er að orðlengja það, að nú er löngu orðin viðtekin hefð að líta svo á að þessi ritdómur hafi endanlega gengið að rím- unum dauðum einn og óstuddur og ágætri aukagoðsögn hefur jafnvel verið hnýtt við og því haldið fram að Sigurður Breiðfjörð sjálfur hafi tekið svo mikið mark á orðum Jónasar á bak við tjöldin, að hann hafi bætt ráð sitt stórlega og ort síðan Núma- rímur, sem margir telja hápunkt rímna- listarinnar, en um leið svanasöng hennar. Því miður stenst hvorugt. Númarímur eru að vísu ortar síðar en Tristansrímur, en samt eru þær ortar áður en dómur Jónasar hafði birst. Þessi goðsögn á vafalaust ræt- ur sínar í þeirri óskhyggju bókmennta- fræðinga fyrr og síðar að gagnrýni geti haft bætandi áhrif á skáld, verði til að þeir sjái villu síns vegar og ákveði að gera betur næst. Og meintur dauði rímnanna eftir Fjölnisdóminn er líka goðsögn í heild sinni. Um þetta skrifar Þorsteinn Erlingsson í Sunnanfara árið 1892: (.. .) Hér sést ljóminn af frægðarverki Jónasar Hallgrímssonar í allri dýrð sinni. Þetta vannst honum, en lengra náði hann ekki. „Höggið tók ekki meira“ myndi síra Hallgrímur hafa sagt. Banað rímunum gat Jónas ekki, þeim fjölgaði jafnt sem áður, og sjald- an munu fleiri rímur vera ortar og prentaðar en frá 1830-1860, og bætt þær hefur hann ekki með gauragangi sínum því Númarímur voru kveðnar áður en skammirnar komu. Síst af öllu hefur honum lánast að taka alþýðu hylli frá rímunum, því bæði á Suður- og Norðurlandi, þar sem vér til vitum, hafa þær verið í góðu gengi til skamms tíma. (. . .) Hér hefir því alþýða farið sína leið þegjandi, eins og alþýða er vön að gera. Hún er oft seinfær til TMM 1990:2 79
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.