Húnavaka - 01.05.1972, Page 31
HÚNAVAKA
29
sungið „Nú er frost á fróni“, að við heyrðum aukaraddirnar þrjár,
sem að framan er getið, án þess nokkuð hefði verið um það beðið í
upphafi, og því líkast, sem um æfðan söngflokk hefði verið að ræða.
Og ég lýk þessum hugleiðingum með því að taka mér í munn orð
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, að slíkt gæti hvergi í heimi gerzt
nema á Islandi.
Sjóskrímsli
Haustið 1639 rak kynjaskepnu mikla eða sjóskrímsli á Þingeyrarsand. Var
skepna þessi ámóta að lengd og gildleika og mannslíkami. Sumir telja dýrið
liafa haft 7 hala aðrir átta eða jafnvel níu, hvern tveggja álna langan og alsettan
hnöppum.
Auglýsing
Þeir, sem drekka og drabba, samt styðja daglega krambúðarborðin, verða
skrifaðir í bók og fá engan styrk úr fátækrasjóði.
Reykjavík 24. febr. 1847
Stefán Gunnlaugsson
bæjarfógeti.
Kláðamaurinn og hundur amtmannsins
Þó að ein sveitin skeri, þá getur kláðinn komið í hina sveitina áður en nokkur
veit af. Þó að Húnvetningar skeri nú, til að verja Skagafjörð og norðursveitir,
þá getur kláðinn komið upp í Skagafirði að vetri, og þegar Skagfirðingar eru
að skera seinustu ána, þá getur kláðinn verið að spretta upp í Eyjafirði og svo
koll af kolli. Enda liver getur ábyrgzt, að ekki loði kláðamaur jafnvel í sýslu-
manninum sjálfum, eða í amtmanninum eða í hundinum þeirra ef þeir koma á
blóðvöllinn.
Ný félagsrit