Húnavaka - 01.05.1972, Side 76
74
HÚNAVAKA
tveggja km. leið. Mjólkinni var dælt jafnóðum í burt, sem sagt
hlaupið yfir tankvæðingarstigið. Til baka fékk karl svo mysu, sem
leidd var beint í drykkjarker kúnna, og drukku þær um 100 lítra á
dag hver, eða sem svarar 6 fóðureiningum, en fengu ekkert vatn.
Þetta fyrirkomulag hafði reynzt með ágætum í þrjú ár, og var komið
á 6 stöðum öðrum.
Það sem vakið hafði athygli okkar, var hve byggingar voru gamlar,
og vel viðhaldið, reynt hafði verið að lagfæra og gera þær þægilegri,
en nýbyggingar sáust vart, það sem af var ferð okkar.
En nú áttum við að kynnast öðru, þ. e. svæðum, sem liöfðu verið
þurrkuð upp — numin úr djúpi — og gerð byggileg á tiltölulega
fáum árum. Um langan aldur hefur hafið hrifsað stórar spildur úr
landinu, og er það svæði, sem nú er Suðursjór langstærst. Það er
ekki fyrr en á 13.—15. öld, sem fólkinu tekst að halda uppi raunhæf-
um vörnum gegn ágengni hafsins, og enn síðar, sem land er sótt í
greipar þess. Árið 1891 setti ungur verkfræðingur, C. Lely að nafni,
fram áætlun um lokun Suðursjávar með stíflu, og í framhaldi af
því uppþurrkun vissra svæða með hleðslu hringmyndaðra garða, þar
sem vatninu yrði dælt burt.
Þessi áætlun náði samþykki þings og stjórnar 1918, og 28. maí
1932 kl. 13.02 var síðasta opinu lokað á hinni miklu Suðursjávar-
stíflu. Nú er Suðursjór svo til ósaltur, og búið að þurrka upp um
122.000 ha. og áætlað að taka um 100.000 ha. í viðbót.
Við förum nú um svæði, sem nefnist Norðausturpolder, (polder
þýðir uppþurrkað land) sem þurrkað var á árunum 1937—42. Þar
er öllu landi skipt í spildur 20—50 ha. að stærð, og síðan leigt með
húsum, en ríkið annast uppþurrkun og allan undirbúning fyrir
sjálft landnámið. Staðsetningu þorpa og bæja, er þannig hagað að
allir, er landbúnað stunda, eigi ekki nema fárra km. leið til þeirra.
Einnig kynntumst við þessu landnámi á frumstigi, eða þar sem
ríkið vinnur að undirbúningi, bæði með uppþurrkun og ræktun.
Var það í austur Flevolandi, sem er um 56.000 ha. Þarna var lokið
við að dæla burt vatninu 1957, og nýbyrjað að skipta landi til leigj-
enda, en mest af svæðinu á undirbúningsstigi. Raps er mikið notað
á fyrstu árunum, og sáum við m. a. 2.900 ha. akur, á að líta, sem gult
þykkt teppi, svo langt sem augað eygði. Þetta landnáms- og upp-
byggingarstarf er svo umfangsmikið, að því verður eigi gerð næg
skil hér að sinni, en ef til vill síðar.