Húnavaka - 01.05.1972, Blaðsíða 122
120
HÚNAVAKA
Gtiinld kirhjtm og IbúStnliiisitS. Sáhntmit'fnd og Jneslur ti leicí lil nýju hirkjunnar.
hefur einh\ei ja l'járnnini til hyggingarinnar, en þakka því öllu al
alhug l'yrir sinn góða stuðning. F.g get hér um þá, sem gáfu til skreyt-
ingar í kirkjnnni og aðeins fleiri.
Kvenfélag Höskuldsstaðasóknar, gaf vandað orgel, lieimtaug
vegna rafmagns, iill Ijósastæði og ljósabúnað. Ungmennafélagið
„Vorbher" gal fána og stöng. Sigurður Sölvason og frú Margrét Kon-
ráðsdóttir, gáfu hökul og rykkilín, mjög góða gripi, til minningar
um séra Helga Konráðsson, sem var um skeið þjónandi prestur á
Höskuklsstöðum. Magnús Björnsson og bræður hans, gáfu 4.000,00
krónur til skreytingar í kirkjuna. Rakel Bessadóttir og Guðlaugur
Sveinsson á Þverá, gáfu fána og biblíu. Frú Dómhildur Jónsdóttir
og sértt Pétur 1>. Ingjaldsson gáfu tvo blómastjaka til minningar um
foreldra séra Péturs. Hafsteinn Jónasson og Soffía Sigurðardóttir
gáfu Kristsmynd. Petrea Jónsdóttir, Skrapatungu, gaf tvo 1 jósastjaka,
til minningar um mann sinn, Antoníus G. Pétursson. Valgerður
Bjarnadóttir frá Efri-Mýrum, gaf vita. Unnur Einarsdóttir, Neðri-
Mýrum, gaf tvo bikara til minningar um foreldra sína. Eiríkur Guð-
laugsson og Hólmfríður Ágústsdóttir gáfu 2.000,00 krónur, og Einar
Evensen og félagar hans í h.f. Fróða gáfu útidyrahurð kirkjunnar.
Ég þakka hér með öllu þessu fólki hinar mjög svo góðu og rausnar-
legu gjafir.