Húnavaka - 01.05.1972, Blaðsíða 104
102
HÚNAVAKA
Stefán var sonur Benedikts Pálssonar á Framnesi, Hjálmarssonar
danska. Svanhildur hét móðir hans, ættuð af Austurlandi. Þegar
þetta var mun Stefán hafa verið um eða lítið yfir tvítugt. Hans sjó-
mennska var öll ein framabraut. Hann fór til sjóróðra suður í
Grindavík á vetrarvertíðum og tók fljótlega að sér formennsku á
teinæringi Einars kaupmanns í Garðhúsum og varð fljótlega forystu-
maður um sjósókn þar, því að fyrir kom það nokkrum sinnum á
hverri vertíð að hann var einskipa á sjó. Aldrei hlekktist honum á,
svo örugg var forsjá hans og hamingja. Svo lá leið hans á togara, í
Sjómannaskóla og síðan upp á stjórnpallinn, þar endaði hann sem
skipstjóri, en dó úr krabbameini á fimmtugsaldri. Hann var mikill
sómi sinnar stéttar.
Það var liðið langt á júlí (23. júlí) þetta sumar. Þá er það einn
morgun í norðaustan strekkingi, en þó talið sæmilegt sjóveður, að
þeir róa Hafrennir, Suðri og Vilhjálmur. Grænkollur fór ekki. Bát-
arnir sigldu norður og vestur og lögðu sínar lóðir. Suðri norðast.
Þegar líður á daginn lenda þeir á eðlilegum tíma Hafrennir og Vil-
hjálmur. Þeir létu ekki illa af veðri, en sögðu fiskaferð mikla, þ. e.
hvalfiska eða stórfiska, eins og þeir voru oft nefndir. Suðri kom ekki
að landi. Lengi var horft og vonað, en árangurslaust. Þeir voru með
öllu horfnir, en enginn vissi hvað olli. Þeir sem fórust með Suðra
voru þessir:
Rögnvaldur S. Jónsson, Steinholti, 44 ára, formaður.
Valdimar, sonur hans, háseti.
Guðlaugur Eiríksson, Holti, háseti.
Valdimar, sonur hans, háseti.
Jens Stiesen, Hvammkoti, háseti.
Rögnvaldur fluttist til Kálfshamarsvíkur frá Bolungarvík við ísa-
fjarðardjúp og var búinn að stunda þaðan sjó í nokkur ár. Hann
mun hafa verið skagfirzkur, ættaður af Reykjaströnd. Hann var
hagorður vel.
Sonur Rögnvaldar, Valdimar, 20 ára, var hæglátur maður, mikill
vexti og svo hraustur að með eindæmum var. Til marks um burði
hans má nefna, að hann tók full olíuföt af jafnsléttu og setti upp á
önnur, sem stóðu á endann. Þau munu hafa verið um 500 pund.
Guðlaugur Eiríksson, oft nefndur Guðlaugur póstur, kenndur