Húnavaka - 01.05.1972, Side 131
HÖN AVAKA
129
En hér fór á annan veg'. Strax á unglingsárum hafði hann sterka
löngun til að afla sér meiri menntunar en bændaefni áttu þá völ á,
og með lítinn farareyri, en einbeittan viljakraft fór hann í Verzlun-
arskóla Islands og lauk þar námi árið 1917.
Hann hóf störf hjá Samvinnufélögunum á Blönduétsi (Kaupfélagi
Húnvetninga og Sölufélagi A—Húnvetninga) árið 1918, sem bók-
haldari og þar starfaði hann þar til í lok júní mánaðar s. 1. að einu
ári undanskildu, en það ár var hann í Reykjavík.
Hann var ákaflega stundvís ogáhugasamur starfsmaður. Bókfærsla
hans var jafnan traust, enda mjög glöggur á tölur. Hann skrifaði
mjög fallega og allur frágangur á verkum hans bar vott um smekk-
vísi, nákvæmni og skyldurækni.
Þannig vildi hann líka að aðstoðarmenn hans leystu sín störf af
hendi, og það var þeim lærdómsríkur og skemmtilegur skóli að
starfa með honum.
Hann var prúðmenni í orðum og athöfnum og var gæddur óvenju
skemmtilegri kímnigáfu. Gamansöm og græskulaus tilsvör lians
munu mörgum minnistæð. Hann átti svo auðvelt með að létta skap
annara með návist einni og viðræðum.
Jón fluttist til Reykjavíkur á ársbyrjun 1943 og gerðist skrifstofu-
stjóri hjá Kristjáni G. Gíslasyni. A því ári lét Pétur Theódórs af
framkvæmdastjóra-starfi hjá Samvinnufélögunum á Blönduósi og
var þá leitað til Jóns og honum gefinn kostur á starfinu. Hann kom
norður til fundar við forystumenn félaganna, samkvæmt beiðni
þeirra, og mér er það minnisstætt að kvöldið sem fundurinn stóð
yfir kom hann heim til mín. F.g var að vinna úti og ég sá strax að
hann var óvenjulega alvarlegur. Ekki vildi hann koma inn, sagðist
bara þurfa að spyrja mig einnar spurningar. „F.rtu búinn að taka að
þér framkvæmdastjórastarfið“ spurði ég. Hann kvað það ekki vera,
en hann yrði að gefa ákveðið svar eftir stutta stund. F.g spurði hvort
hann væri hikandi við að taka þetta starf og liann svaraði því ját-
andi. F.g bað hann að segja mér ástæðuna fyrir jsví og hann gerði
það þannig. ,,í Iniga mínum togast á tvö öfl. Annars vegar gott og
auðvelt starf, mjög vel launað framtíðarstarf í Reykjavík, þar sem
nóg er af húsum og götum, en ekkert gras. Hins vegar starfið hér
með tilheyrandi erfiði og áhyggjum, á hugþekkum slóðum, meðal
góðra vina og blessuðum sveitunum grasi grónum, sem geyma mín-
9