Húnavaka - 01.05.1972, Page 159
HÚNAVAKA
157
Hulda Björk Óskarsdóttir, barn í Meðalheimi, lézt af slysförum
14. október. Hún var fædd 20 ágúst 1960 á Blönduósi. Foreldrar
hennar voru hjónin Óskar Sigurfinnsson bóndi í Meðalheimi og
kona hans Guðný Þórarinsdóttir.
Hallbera Eiriksdótlir, húsmóðir á Sveinsstöðum, andaðist 9. des-
ember á H. A. H.
Hún var fædd 9. júní árið 1919 að Búrfellskoti í Árnessýslu. For-
eldrar hennar voru hjónin Eiríkur Ásmundsson og kona hans Guð-
björg Jónsdóttir, er bjuggu í Búrfellskoti. Er hún var á öðru ári
veiktist móðir hennar og var hún þá tekin til fósturs af föðurforeldr-
um sínum Ásmundi Eiríkssyni og Guðrúnu Jónsdóttur, er bjuggu
að Neðra-Apavatni í Grímsnesi. Árið 1938 réðist Hallbera, sem
starfsstúlka að Héraðsskólanum á Laugarvatni, en þar dvaldi hún
um eins árs skeið. Haustið 1939 innritaðist hún í Kvennaskólann á
Bliinduósi, þaðan sem hún útskrifaðist, eftir eins og hálfs vetra dvöl.
Sumarið næsta var hún í kaupavinnu á Holtastöðum og síðar
starfsstúlka á Blönduósi. Þann 24. apríl árið 1943 gekk hún að eiga
Olaf Magnússon, hreppstjóra á Sveinsstöðum, þar sem hún bjó til
dauðadags. Hún var mikil húsmóðir og hjálpsöm.
Eignuðust þau hjón 6 börn, en þau eru: Marsibil Gyða, gift Grét-
ari Vésteinssyni, Magnús, bóndi á Sveinsstöðum, ókvæntur, Ásrún
Guðbjörg, gift Gunnari Richardssyni, Þórdís, heitbundin Oddi Vil-
hjálmssyni, Jónsína, námsstúlka, ógift og Eiríkur, er dvelur heima.
Sr. Árni Sigurðsson.
Þann 3. júlí varð bílslys á Vatnsskarði. Létu Jrar lífið, Þóra Guð-
rún Kristjdnsdóttir, f. 8. september 1939, húsmóðir, Heiðarveg 23,
Keflavík.
Steinunn Anna Sigurbergsdóttir, f. 7. nóvenrber 1970, barn, heim-
ili Tjarnargötu 4, Keflavík.
I.ík Jreirra voru flutt til Keflavíkur og jarðsett Jrar.
Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson.