Húnavaka - 01.05.1972, Blaðsíða 194
192
HÚNAVAKA
fyrr en að loknu Héraðsmóti að
við fengum þjálfara, sem F.R.Í.
hafði á sínum vegum og sendi út
um land. Það var Jóhannes Sæ-
mundsson og var hann hjá okkur
í rúma viku fyrir Landsmót
U.M.F.Í., sem haldið var á Sauð-
árkróki. Þangað var haldið með
allfjölmennt lið, enda stutt að
fara. Auk keppenda í frjálsum
íþróttum fóru keppendur í
starfsíþróttum og skák. Aðal-
fararstjóri var Pálmi Jónsson
alþingismaður. — Sambandið
keypti nýja búninga fyrir Lands-
mótið, og eru þeir í sömu litum
og eldri búningar sambandsins
voru, buxurnar bláar, en blússan
hvít. Allir keppendur voru því
klæddir nýjum búningum í
skrúðgöngunni, sem farin var
inn á völlinn fyrri dag Lands-
mótsins. Vakti þetta verðskuld-
aða athygli og þóttu búningarnir
fallegir. Var m. a. birt mynd af
hópnum, með fánabera í broddi
fylkingar, á jólakorti U.M.F.Í.
fyrir siðustu jól. Á öðrum stað í
ritinu er sagt frá árangri skák-
sveitarinnar, en 13 stig hlaut
sambandið í frjálsíþróttakeppn-
inni og 16.7 stig í starfsíþróttum.
Lárusi Guðmundssyni var boðið
í keppnisför U.M.F.Í. til Dan-
merkur að loknu Landsmóti, en
hann gat ekki þegið það.
Umf. Vorboðinn sá um llngl-
ingamót í frjálsum íþróttum og
var þátttaka góð. Að því loknu
var unglingadansleikur í Húna-
veri. Keppendur voru sendir á
Norðurlandsmeistaramót í frjáls-
um íþróttum á Akureyri, en
sýslukeppnin, sem Skagfirðingar
áttu að sjá um, féll niður.
U.M.F.Í. sarndi um það við
Vegagerð ríkisins að ungmenna-
félagar um land allt tækju að sér
dreifingu fræs og áburðar í veg-
kanta. Með þessu spöruðust mik-
il vinnulaun og var því fjár-
magni varið til aukinna áburðar-
kaupa. Hér í sýslu var mest
dreift með Reykjabraut og á
Hjaltabakkamela, en að auki
fékk hvert ungmennafélag eitt
tonn, sem það dreifði í sinni
sveit. Víða mátti sjá árangur
þessa starfs þá fram á sumarið
kom. Ætlunin er að halda þessari
starfsemi áfram a. m. k. til ársins
1974 og er hugsuð sem örlítil
afmælisgjöf til landsins á því
merka ári. Þá fóru ungmenna-
félagar landgræðsluferðir á heið-
ar upp, og dreifðu 5 tonnum á
Eyvindarstaðaheiði, 6 tonnum á
Auðkúluheiði og 1 tonni á
Grímstunguheiði.
27. sambandsþing Ungmenna-
félags íslands var haldið að
Húnavöllum 30. og 31. október.
Þingið sóttu um 70 fulltrúar frá
lfi sambandsaðilum. Hafsteinn
Þorvaldsson form. U.M.F.Í. setti
þingið og flutti yfirlit um starf-