Húnavaka - 01.05.1972, Blaðsíða 177
HÚNAVAKA
175
Ekki mun þessi stöð ná Núpi eða
Mánaskál.
Reiknað er með að allir bæir
út Skaga nái geisla frá Hnjúk-
um, þó misvel eftir staðháttum.
Hugsanlegt er, að Ásbúðir nái
betri mynd austan yfir Skaga-
fjörð, en það hefur ekki verið
mælt ennþá, stöð sú ekki enn
komin upp.
Gústaf sagði, að inni í miðjum
sveitum væru bæir, sem ættu í
erfiðleikum vegna ýmiss konar
staðhátta og nefndi í því sam-
bandi Gunnsteinsstaði, Móberg
og Sólheima.
Hvað Hveravöllum viðvíkur,
þá hefur ekki enn reynzt unnt
að ná nægilega góðri sjónvarps-
mynd þar, svo að þessir útverðii
okkar Húnvetninga í suðrinu
geta ekki stytt sér stundirnar við
sjónvarpið.
Er Gúsiaf var spurður að því
hvenær reikna mætti með að þær
endurvarpsstöðvar, sem ókomnar
eru, yrðu reistar, gat hann ekki
gefið svar við því. Sagði hann að
Sjónvarpið hefði gert kostnaðar-
áætlun fyrir hverja stöð. Hefði
Ríkisútvarpinu verið sendar
þessar áætlanir, en það hefði
ákvörðunarvald um hvenær þær
yrðu byggðar.
í heild má segja, að vel sjáist
hér í sýslunni, þó einstöku svæði
og sveitabæir hafi ekki alveg full-
nægjandi skilyrði. Og því miður,
eins og að framan greinir, eru
nokkrir bæir sem ekki virðast
hafa möguleika á sjónvarpi að
óbreyttri tækni.
Jóh. Guðm.
FRÉTTAVIÐTAL.
Húnavaka hitti að máli Sigurð
Kr. Jónsson framkvæmdastjóra
Byggðatryggingar h.f. á Blöndu-
ósi, og innti hann frétta af félag-
inu.
Sigurður, nú hefur Byggða-
trygging starfað í 10 ár, hvernig
hefur reksturinn gengið?
Ég tel að reksturinn hafi verið
all góður. Þó hefur síðasta ár
verið mun
m e i r a
tjónaár en
undanfar-
ið. Má þar
sjálfsagt
kenna um
aukinni
b í 1 a u m-
ferð. Okk-
ar iðgjöld
eru að stór-
um hluta
iðgjöld af bifreiðatryggingum,
og með auknum bílakosti og
aukinni umferð, er ef til vill
eðlilegt að tjónin aukist jafn-
framt. Ég hef að vísu ekki enn
nákvæmar tölur yfir síðastliðið
ár, en brúttótekjur af iðgjöldum