Húnavaka - 01.05.1972, Page 158
156
HÚNAVAKA
í Bólstaðarhlíð hjá Klemenzi Guðmundssyni og Elísabetu Magnús-
dóttur, en fluttist síðar vestur til rnóður sinnar að Bjarnastöðum og
bjó í félagsbúi við hana til ársins 1928, er hann gekk að eiga Guð-
rúnu Jónsdóttur frá Másstöðum, 30. apríl 1929. Pálmi var skyldu-
rækinn og trúr þeim störfum er honum voru falin. Um 30 ára skeið
hafði liann með höndum söfnun og útgáfu markaskrár Austur-Húna-
vatnssýslu. Var m. a. fulltrúi sveitar sinnar í skilaréttum upprekstar-
félagsins og réttarstjóri í Vatnsdalsrétt s. 1. 13 ár. Pálmi var fjármað-
ur góður og glöggur svo að orð fóru af.
Synir þeirra hjóna eru: Jón og Zóphonias, er báðir búa á Hjalla-
landi, ókvæntir og barnlausir og Ellert bóndi á Bjarnastöðum kvænt-
ur Vigdísi Bergsdóttur frá Sandgerði syðra.
Jún Jónsson, bóndi í Öxl í Þingi andaðist 17. september. Hann
var fæddur 21. október 1893 að Öxl. Foreldrar hans voru hjónin
Jón Jónsson bóndi þar og kona hans Stefanía Guðmundsdóttir og
voru ættir þeirra kunnar í Húnaþingi.
Jón ólst upp í föðurgarði við hin margvíslegustu sveitastiirf.
Haustið 1911 settist Jón í Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal og
iauk þaðan búfræðiprófi vorið 1913. Eitthvað mun hann hafa lagt
stund á íþróttir í Hólaskóla a. m. k. íslenzku glímuna, en hann var
um skeið einn af Iteztu glímumönnum héraðsins. Næstu árin var Jón
í vistum hér um sveitir m. a. á Þingeyrum, Leysingjastöðum og Haga.
Árið 1919 hóf hann búskap á föðurleifð sinni Öxl. í fyrstu sem leigu-
liði foreldra sinna og í tvíUýli við Sigurð bróður sinn, sem árið eftir
festi kaup á Litlu-Giljá og fluttist þangað. Að foreldrum sínum látn-
um keypti Jón hálfa Öxl árið 1938. Árið 1929 gekk hann að eiga
Sigríði Björnsdóttur frá Hnausum. Bjuggu þau í Öxl, allt til ársins
1953, er þau brugðu búi og dvöldu eftir það í skjóli fósturdóttur og
tengdasonar í Öxl, fram til haustsins 1969, er þau lluttu á Elliheim-
ilið á Blönduósi, en þar dvaldi Jón til dauðadags.
Jón var jafnan talinn í röð beztu bænda í Húnaþingi um sína
daga. Hann var mikill fjárræktarmaður. Hestamaður var hann og
kunnur. Hann var hógvær maður og friðsamur.
Þeim hjónum varð eigi barna auðið, en tóku til fósturs Sigur-
björgu Guðmundsdóttur, fyrrum bónda á Refsteinsstöðum og
Hraunum í Fljótum. Býr hún í Öxl ásamt manni sínum Svavari Jóns-
syni frá Lambanesreykjum í Fljótum.