Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 45

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 45
nokkuð sem gæti meitt. Og fyrir það varð hann mér sú fyrirmynd að ég veit að mér hefur oft dottið í hug að ég gerði eitthvað - og hugsað að þetta gæti ég ekki látið hann föður minn heyra. Og þama er ekkert bann. Þama er bara fordæmið. Ég held helst að hann hafi aldrei bannað mér neitt.7 Aðalbjörg lýsti föður sínum nánar í erindi sem hún flutti árið 1922 á fundi hjá Sálarrannsóknarfélagi Islands og birtist í tímariti félagsins, Morgni. Er- indið nefndi hún: Ymislegt úr eiginni reynslu. Ég held mér sé óhætt að segja, að ég hafi elskað hann eins heitt og bam get- ur elskað föður. Hann hafði ekki eingöngu verið mér faðir og fræðari, sem ég leitaði alltaf til með allar vandaspumingar, heldur einnig fyrirmynd þess, hvemig góður maður ætti að vera. Þess undarlegra er að segja það, að ég syrgði hann í raun og veru aldrei neitt svipað því, eins og eðlilegt hefði ver- ið. Ég gat ekki fundið, að ég hefði mist hann; hann hélt áfram að vera í kring- um mig; mér fannst hann gæta mín og gefa mér ráð, og altaf hafði ég ríkasta tilfinningu af þessu, þegar mér lá mest á.8 En hér er ekki öll sagan sögð. Sigurður Ketilsson var haldinn hinum ógur- lega sjúkdómi, holdsveikinni. Það var ekki nóg með það, að þessi veiki hefði hinar verstu líkamlegu afleiðingar, heldur fylgdi henni frá gamalli tíð útskúfun úr mannlegu samfélagi. Holdsveikt fólk var einangrað, lokað inni á sérstökum stofnunum eða vísað með öðrum hætti úr samfélagi manna. Það mátti ekki sýna sig, enda margir svo hræðilega útleiknir af sjúkdómnum, að þeir vildi síst sjálfir sýna sig meðal annars fólks. Holdsveikraspítalinn í Laugamesi við Reykjavík, sem danska Oddfellowreglan á þakkir fyrir að var reistur, tók ekki til starfa fyrr en árið sem Sigurður lést. Hann var því heima og kona hans brá á það ráð að sinna honum sjálf að öllu leyti og ein- angra hann eins og hægt var frá öðrum á heimilinu og sjálfsagt gestkomandi einnig, því það var almenn trú í þá daga að holdsveikin væri mjög smitandi. Það var hlutverk Kristfnar vinnukonu, sem áður er nefnd, að sinna Aðal- björgu. Aðalbjörg var mikið ein sem bam og má rekja það til þess að hún var einbirni, en sjúkdómur föður hennar hefur einnig valdið miklu þar um. Hún hafði ekki eðlilegan aðgang að foreldrum sínum, eða a.m.k. ekki þá nánd sem flestum bömum er eðlileg. Hún hefur verið þjökuð af ótta við að missa föður sinn, að hann dæi úr þessum hræðilega sjúkdómi eða yrði að fara af 7 Aðalbjörg Sigurðardóttir. I vikulokin 1965. 8 Aðalbjörg Sigurðardóttir 1922: 192. 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.