Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Blaðsíða 67

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Blaðsíða 67
skólanám Jóhanns og hún tekur Harald að sér og kemur honum til heilsu og starfa á ný. Ráðagerðin gengur upp. Jóhann lýkur námi og fer utan til fram- haldsnáms í bókmenntum. Haraldur nær heilsunni og meira en það, starfs- orka hans er sem aldrei fyrr seinni hluta árs 1918 og andlegt þrek hans er óbilað ævina út. Haraldur kom í fyrirlestrarferð norður til Akureyrar sumarið 1918. Ferð- in tókst vel og prófessomum var vel fagnað og fólk fjölmennir hvar sem hann kom til að prédika og flytja fyrirlestra. Kynni þeirra Aðalbjargar urðu nánari og þau trúlofuðust og fóru saman í skemmtiferð austur í þingeyskar sveitir. Þau voru vígð í hjónaband 2. október 1918. „að Iifa fyrir þig“ Þrátt fyrir kvenréttindabaráttuna gekk Aðalbjörg ekki inn í hjónabandið með Haraldi með það í huga að standa á jafnréttisgrundvelli gagnvart hon- um. Það er merkilegt að lesa það sem þessi mikla kvenréttindakona skrifar tilvonandi eiginmanni sínum í bréfi 8. september 1918: Nú á ég enga ósk heitari en þá, að ég geti orðið þjer sem mest á allan hátt, ég vil því gjaman reyna að laga mig eftir þér og þínum óskum, sem allra mest, en ég kann að gleyma því stundum, af því að ég að þessu hefi ekki þurft að taka tillit til annars, en míns eigin vilja. Ég vil þess vegna biðja þig, að segja mér alltaf hiklaust, ef þér þykir eitthvað að mér eða breytni minni, sem ég gæti bætt úr, það er betra að tala um hlutina, en að geyma þá hjá sér. Þú þarft ekki að óttast að ég taki það illa upp, ef ekki eru höfð stór eða meið- andi orð, þau geta stundum sært svo voðalega, en það veit ég að þú mundir aldrei gera. Vinur minn, guð gæfi að við gætum fundið þann styrk í samlíf- inu, að við gætum lfka orðið öðrum meira eftir en áður, en þá skoða ég það svo, að ég á fyrst og fremst að lifa fyrir þig og þú mátt gera þá kröfu til mín og minna mig á hana, ef þér fínnst jeg vanrækja þá skyldu, þú borgar svo fólkinu skuldir okkar beggja, ef guð gefur þér heilsu og kraft til starfa.49 Ástæða þess að Aðalbjörg gekk inn í hjónabandið með þessu hugarfari er guðleg köllun hennar að fóma sér fyrir málstað kærleikans, afneita eigin óskum til þess að aðrir geti verið frjálsir og hamingjusamir. Hún útskýrir þetta nákvæmlega fyrir Haraldi: Ég sagði þér einu sinni, að þegar ég hefði lofað að giftast þér, þá hefði það 49 Bréf frá Aðalbjörgu til Haralds 8. sept. 1918. 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.