Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 49

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 49
undarinnar eins og hún kallaði það sjálf - voru lrkleg orsök þess að hún syrgði ekki föður sinn við andlát hans. En hún syrgði hann nokkrum árum síðar og í þeirri sorgarvinnu reyndi hún það sem á máli djúpsálarfræðinnar er kallað tilfærsla.16 Hún missti vin- konu sína, frænku og jafnöldru, Jakobínu Jónsdóttir, sem áður er nefnd, þegar hún var innan við tvítugt og viðbrögðin urðu þá sterk og áfallið mik- ið, enda var hún þá líklega um leið að syrgja föður sinn. Hún var illa í stakk búin til að vinna úr áfallinu, því hún hafði misst trúna þegar presturinn kenndi henni trúfræði kversins fyrir fermingu. Það var henni ekki léttir að eiga minningu um það, að faðir hennar efaðist um kenningar kirkjunnar og hún virðist ekki hafa getað unnið úr þeim stóru spurningum, sem við það vöknuðu. Þegar svo farið var að halda trúfræði kirkjunnar að henni fyrir al- vöru í fermingarfræðslunni olli það henni öryggisleysi. Hún lýsir þessu þannig: Niðurstaðan varð sú, að hefði ég mátt ráða fermingarvorið mitt, þá hefði ég áreiðanlega ekki látið ferma mig. Næstu árin á eftir hrundu allir trúarlærdóm- ar til grunna hjá mér, en af því að ég var svo ung, hafði ég ekki vit á að hreinsa hveitið frá hisminu. Odauðleikatrúin og jafnvel guðstrúin fóru sömu leiðina, því að ég dró þá röngu ályktun, að fyrst eitthvað af hinni risavöxnu trúarlærdómabyggingu kristindómsins félli, þá hlyti hún öll að falla, og öll trúarbrögð mundu vera heimska. Ég hætti af ásettu ráði að biðja guð, og ég sleit mig út úr sambandi því, sem ég hafði lifað í við hið ósýnilega.17 En Aðalbjörgu fannst það óbærileg tilhugsun að vinkona hennar væri alger- lega horfin, töpuð um alla eilífð og gat fyrst eftir andlát hennar ekki eygt nokkum ljósdepil í tilverunni og vonleysið hertekur hana. Ef frænka henn- ar var henni algerlega horfin þá var einnig andlegt samband hennar við föð- ur hennar lífs og liðinn einungis tálsýn. Um þetta leyti hófust umræður manna á meðal um spíritisma og sálarrannsóknir og hún lagði eyra að þeim í þeirri von að geta sannfærst um áframhaldandi tilvist vinkonu sinnar. Hún reyndi einnig að fylgjast með því sem sagt er um guðspekina og það gerði það að verkum að hún fór að trúa aftur á gildi dulrænnar reynslu sinnar. Sjö árum eftir að hún missti vinkonu sfna upplifði hún aftur samband við ann- an heim og hún lýsti þessari reynslu á eftirfarandi hátt. Tökum eftir því að hún er aftur ein: 16 Freud 1976:425. 17 Aðalbjörg Sigurðardóttir 1922:192. 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.