Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 59

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 59
kaupmannsfrú á Akureyri var einnig liðtæk í aðstoðinni við Jóhann.37 Hann mun einnig hafa umgengist einhverja í vinahópi Aðalbjargar meðal guð- spekinga því hann ber henni einu sinni sérstakar kveðjur Láru og mun þar vera sú sama Lára og fékk bréfið fræga frá Þórbergi Þórðarssyni, en hún var félagi í guðspekistúkunni Systkinabandinu á Akureyri. Hann gleymdi aldrei ást sinni til Aðalbjargar og þegar hann lá dauðvona í berklum suður í Leipzig trúði hann vini sínum Halldóri Laxness fyrir því að það eina sem hann óskaði sér væri að fá að koma heim til íslands til Aðalbjargar, sem þá var orðin ekkja, og fá að deyja hjá henni. Aðalbjörg bjó þá í Laugarnesspít- alanum með börnin sín tvö, Jónas ellefu ára og Bergljótu átta ára. Jónas man eftir því að Kristinn E. Andrésson kom í heimsókn að Laugarnesi þar sem hann mun hafa flutt þessa bón Jóhanns. Aðalbjörg tók umhugsunarfrest og þegar Kristinn kom aftur til að grenslast fyrir um svar Aðalbjargar þá var það neitandi. Hún var hrædd um berklasmit og vildi um fram allt verja böm sín fyrir því. Það fylgir sögunni að Halldór Laxness hafi átt erfitt með að fyrirgefa Aðalbjörgu þetta. Aðalbjörg trúði því að Halldór Laxness hefði fengið grunninn að sög- unni um Sölku Völku frá Jóhanni. Hún taldi sig þekkja margar lýsingar í sögunni á sambandi Sölku og Amalds því þær ættu við samband hennar og Jóhanns.38 Víst er um það að stíll og orðfæri nokkurra setninga úr bréfum Jóhanns til Aðalbjargar minna á samtöl Sölku og Amalds í seinna bindi skáldsögunnar. Þrjú bréf Jóhanns til Aðalbjargar frá árinu 1917 hafa varð- veist í umslagi sem á stendur: „Kristinn Andrésson, afhendist að mér látinni. Aðalbjörg Sigurðardóttir.“ Þessi bréf eru merk heimild um frjóann huga ungs og ástfangins manns með ótvíræða skáldahæfileika. Orðfærið, stíllinn, myndmálið og hugtakanotkun bréfanna bera með sér að höfundurinn þekk- ir hugarheim guðspekinnar og að hann glímir við sjálfan sig og tilfinningar sínar og alheiminn með því að spegla sig í sálarlífi konunnar sem hann elsk- ar og virðir, en viðurkennir um leið að er sterkari og betri en hann sjálfur. Fyrsta bréfið er skrifað 19. júní 1917 og bréfritarinn er þá á Akureyri en sá sem bréfið er stílað til, Aðalbjörg, er í Reykjavík. Jóhann er sár yfir því hve skilnað þeirra hafi borið brátt að. Hann saknar Aðalbjargar og skilur ekki af hverju hún yfirgaf hann einmitt þama. Hann skrifar: Þú varst í þann veginn að drösla mér á fastan grundvöll um daginn - en svo 37 Viðtal við Jónas Haralz 2002. 38 Viðtal við Bergljótu Rafnar 1999. 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.