Skagfirðingabók - 01.01.1983, Blaðsíða 63
BRÉF BALDVINS EINARSSONAR
Kaupmannah. þann 3. Agust 1831'
Hiartkæri Fadir minn!
Enn þá einusinni hefi eg þá ánægiu og gledi ad géta komid
til þín bréfsedli, og kom þad mér óvörum, því eg vænti
eigi eptir ad annad skip enn postskipid mundi hereptir
vitia Fróns (fyrir utan eitt frá Flatey vestra). Eg skrifadi
þér med seinasta skipi Wulfs sem fór til Austrlandsins, en
eg ætla ad þetta bréf muni komast fyrri til þinna
heimkynna en þad sem fór til Austrlandsins.
Af mér er ekkért merkilegt frétta sídan, og þó eg taki
þad lítid upp aptr sem eg skrifadi þér med austrlands-
skipinu, þá verdr þad samt ekkért ad marki. Eg og vid öll
hér höfum verid vid góda heilsu sídan gudi sé lof. Þó er
konan nokkud veiklulig, því sonur hennar, hann Einar
litli sygr hana vægdarlaust. Drengrinn dafnar og þroskast,
og er hann nú 19 vikna í dag, en ekki er hann þó kominn
svo langt ennþá ad hann geti sagt Fiandinn! Fiandinn! Eg
held eg verdi ad bidja Gudmund1 2 kall í Holakoti ad kénna
hönum ad stafa, þegar hann stálpast dálítid betr, eg vona
ad daudinn sé ekki búin ad taka hann frá mér enn, hann
Gvend, en ef svo er, þá er hann Steini3 rétt efnilegr til ad
segia krakka til, hann lærdi líka hiá födr sínum, og er víst
útlærdr, og betr til kannské því upplýsíngin vex. Nú
sleppum þessu. Eg sagdi þér í hinu bréfinu, ad strakrinn
hefdi verid skýrdr Einar Bessi. [Betr] ad hann kafni ecki
undir nafni! Mér er hálf hvumleiftt] þad danska í hönum,
1 Þetta bréf er talsvert skaddað, og er því sums staðar reynt að lesa í málið.
2 Guðmundur Gamlason í Hólakoti, 51 árs við manntalið 1816.
3 Steini gæti verið sonur hans, Þorsteinn, 12 ára 1816.
61