Skagfirðingabók - 01.01.1983, Blaðsíða 144
SKAGFIRÐINGABÓK
Hún leggur undir sig fleiri bæi með hverju ári, og eru nú margir
orðnir nálega sauðlausir, sem áður höfðu stór fjárbú.
Bændur hafa fengið fé aftur af ósýktum stofni, hvernig sem
það reynist, en þeir, sem hafa sæmilegt vegasamband við
Sauðárkrók, hafa aftur á móti fjölgað kúnum og lagt stund á
mjólkurframleiðslu, sem gefur góðan arð, eins og stendur.
Þá er einnig hugur í mörgum að auka hrossaræktina;
kynbæta hrossin og bæta meðferð þeirra, og gera þau á þann
hátt verðmeiri. Var hrossasýning á fjórum stöðum í héraðinu í
vor. Fengu 10 hestar I. verðlaun, en 14 II. verðlaun. Fengu 88
hr: ssur I. verðlaun, en 93 II. verðlaun. Einn af þessum hestum
var síðan seldur í haust fyrir 2 þúsund krónur. Hann var frá
Svaðastöðum og talinn beztur af I. flokks hestunum.
Það, sem bezt mun lyfta undir hrossaræktina hér, er það, að í
ráði er að ríkið setji upp hrossakynbótabú að Hólum í Hjalta-
dal, þar sé svo alltaf hægt að fá I. flokks hross fyrir þá, sem þess
óska.
A síðastliðnu vori setti Búnaðarsamband Skagfirðinga upp
tamningastöð á Borgareynni. Voru þar tamdir 60 hestar og
líkaði vel. Hefir það aldrei verið gert áður, því ekki hefir verið
nein þurrð á tamningamönnum í sveitinni fyrr en nú. Sýnir það
eitt með öðru fólksleysið hjá bændum.
Aflabrögð hafa verið hin beztu hjá sjómönnum kringum
Skagafjörð. Bætir það mikið, að nú eru komin tvö hraðfrystihús
á Sauðárkróki, en eitt í Hofsós. Hafa þau gefið 35-40 aura fyrir
hvert kg, og er þá fiskurinn aðeins slægður. Síðan er hann
flakaður og frystur og þannig fluttur út. Eru dæmi til í vetur, að
eftir 10 daga aflahrotu hafa sjómenn fengið allt að 1000 kr. í
hlut. Var það mikið lán fyrir útgerðina, að þessi hús voru að
mestu byggð áður en stríðið skall á, því síðan hefir orðið lítið
um byggingar.
Á síðastliðnu hausti flutti Jósef J. Björnsson, fyrrverandi
alþingismaður og skólastjóri, frá Vatnsleysu til Reykjavíkur.
Hafði hann verið um langt skeið kennari á Hólum og fyrsti
142